Grunaður um kynferðisbrot gagnvart yngri bróður
Í frétt sem birtist á vísi.is í gær segir að hæstiréttur hafi fellt úr gildi ákvörðun Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá 26. júlí þess efnis að lögráða piltur á menntaskólaaldri skuli sæta nálgunarbanni í þrjá mánuði á meðan kynferðisbrot hans gegn yngri bróður eru til rannsóknar hjá yfirvöldum.
Enn fremur segir að “vorið 2016 óskaði barnaverndarnefnd Vestmannaeyja að lögregla tæki til rannsóknar langvarandi ætluð kynferðisbrot piltsins sem hafði greint sálfræðingi frá kynferðislegum hugsunum og löngunum sínum. �?á greindi hann frá kynferðislegum athöfnum með yngri bróður sínum.
Í þriðju skýrslutöku hjá lögreglu í september í fyrra greindi hann frá kynlífi þeirra sem hann hefði oftast átt upptökin að en þó með samþykki þeirra beggja. Í þeim tilfellum sem bróðirinn hefði neitað hefði hann suðað í honum til að fá sínu fram.
Drengirnir hafa síðan sótt sálfræðimeðferð, sá yngri í barnahúsi en eldri svokölluð S�?K meðferðarviðtöl hjá Barnaverndarstofu en um er að ræða meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni sem sýnt hafa óæskilega kynferðislega hegðun.
Eldri bróðirinn er metinn sakhæfur af geðlækni og hafi enga alvarlega geðsjúkdóma. Hann sé þó haldinn barnagirnd og hafi alvarlegar kynferðislegar hugsanir.
Rannsókn málsins hjá lögreglu er lokið og er það nú á borði héraðssaksóknara til ákvörðunar um hvort gefin verði út ákæra í málinu.
Lögreglustjóri byggði ákvörðun sína um nálgunarbann meðal annars á þeim rökstudda grun sem pilturinn liggur undir og þeirri staðreynd að bræðurnir hafi verið í samskiptum í sumar. Engar upplýsingar væru um það hvort pilturinn væri enn hjá sálfræðingi en hann flutti af landi brott tímabundið.
Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur fram að ekkert benti til þess að eldri bróðirinn hefði brotið gegn þeim yngri síðan í apríl í fyrra. �?á voru foreldrarnir afar ósáttir um birtingu lögreglustjóra á nálgunarbanninu í júlí. Kváðu þau að verið væri að vinna í málinu og gengi það vel. Pilturinn mun vera á leiðinni í annan landshluta í ágúst og dvöl hans í Vestmannaeyjum í sumar slitrótt.
Verjandi piltsins lagði fram staðfestingu á sálfræðiviðtölum sem pilturinn fór í 29. júlí og svo um fjörutíu tíma á tímabilinu mars til desember 2016. Síðan hafi hann verið í eftirfylgd hjá sálfræðingnum og ekkert bendi til þess að hann hafi sýnt af sér óviðeigandi hegðun síðan síðasta vor. Sex Skype-viðtöl hafi verið á tímabilinu janúar til júní og pilturinn farið í viðtal við komu til landsins í júní. Sömuleiðis var lögð fram staðfesting um skólavist piltsins í öðrum landshluta frá og með ágúst þar sem móðirin mun búa á sama svæði.
Hæstiréttur felldi ákvörðunina úr gildi og vísaði til þess að nálgunarbann skuli aðeins beitt þegar ekki þyki sennilegt að friðhelgi verði vernduð með öðrum eða vægari hætti. Ekki eigi að fara strangar í sakirnar en nauðsyn beri til. Var sérstaklega litið til þess að ekkert benti til brots gegn brotaþola frá því í apríl í fyrra, árangur af meðferð hefði verið jákvæður og pilturinn að flytja frá Vestmannaeyjum. Ekkert liggi fyrir um að hann sé væntanlegur þangað. Miðað við það sé ekki þörf á nálgunarbanni að mati Hæstarétts þar sem ekki hafi verið sýnt fram á að vægari úrræði gætu ekki dugað.”

Nýjustu fréttir

Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Skvísubúðin fagnar vori og sumri með fjölbreyttu vöruúrvali 
Stelpurnar æfa af krafti fyrir úrslitakeppnina
Vestmannaeyjar – staður þar sem fjölskyldan blómstrar
Sólarupprás og helgistund markaði páskadag í Eyjum
Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.