ÍBV og Grindavík mættust í 13. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag en leiknum lyktaði með 2:2 jafntefli.Cloé Lacasse kom heimamönnum yfir strax á 3. mínútu leiksins þegar skot hennar úr þröngu færi hafnaði í netinu. Eftir um klukkutíma leik jöfnuðu Grindavík metin úr aukaspyrnu af löngu færi. Tíu mínútum síðar náði Kristín Erna Sigurlásdóttir forystunni aftur fyrir ÍBV með fínu skoti inni í teig. �?egar tæpar tíu mínútur lifðu leiks slapp María Sól Jakobsdóttir, leikmaður Grindavíkur, ein í gegn eftir mistök í vörn ÍBV og skilaði boltanum í netið. Fleiri urðu mörkin ekki og svekkjandi jafntefli niðurstaðan. Eftir umferðina eru Eyjakonur með 27 stig í fjórða sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Breiðablik og Stjarnan í sætunum fyrir ofan. �?ór/KA standa vel að vígi með 35 stig í efsta sætinu.