Í gær [þriðjudag] bárust þær fréttir að Umhverfisstofnun myndi veita Vestmannaeyjabæ og Merlin Entertainment heimild til innflutnings á þeim hvölum sem unnið hefur verið að að flytja frá Kína til Vestmannaeyja en frá þessu segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri, á heimasíðu sinni í gær.
�??Eins og þekkt er þá er um að ræða Beluga hvali sem verið hafa sýningadýr í Shanghai í rétt um áratug,�?? segir Elliði í upphafi umrædds pistils er hann rekur aðdragandann. �??Eftir að Merlin eignaðist dýrin með kaupum á skemmtigarði þar í borg, hefur verið unnið að því að koma dýrunum í náttúrulegra umhverfi enda það gegn stefnu þeirra að halda hvölum við þær aðstæður sem þar er um að ræða. Í rétt um þrjú ár höfum við hjá Vestmannaeyjabæ og �?ekkingarsetri Vestmannaeyja unnið með Merlin að þessu verkefni enda þykja Vestmannaeyjar afar heppilegar sem griðastaður þessara hvala. �?ar ræður bæði óviðjafnanleg náttúru sem og sterkur �??infrastrúktúr�?? með áherslu á háskólastarf, sjávarrannsóknir, ferðaþjónustu, sjálfbærar veiðar o.fl.�??
Nei varð að já með auknum gögnum
Eins og fram hefur komið var svar Umhverfisstofnunar við beiðni á innflutningi í fyrstu neikvætt en með auknum gögnum hefur það breyst. �??Í samræmi við lög um innflutning á framandi lífverum þá var umsókn okkar send til sérfræðinefndar Umhverfisstofnunar sem veitti neikvæða umsögn 4. maí síðastliðinn. Við lögðum þá fram aukin gögn og unnum að því að fá nefndina til að endurskoða ákvörðun sína sérstaklega í krafti nýrra gagna. �?að hefur nú skilað þeim árangri að með bréfi dagsettu 21. ágúst er veitt heimild fyrir innflutningi þessara hvala,�?? segir Elliði og bætir við að kálið sé ekki enn sopið
�??Kálið er þó ekki sopið þó í ausuna sé komið því næsta verkefni er að fá útflutningsleyfi hjá kínverskum yfirvöldum. Ekki er ástæða til að ætla annað en að það gangi vel fyrir sig þótt sannarlega sé nokkur vinna framundan vegna þeirrar umsóknar. Ef allt gengur að óskum ættu verklegar framkvæmdir hér í Eyjum að geta hafist núna í vetur og hvalirnir komið hingað til lands sumarið 2019. �?essar framkvæmdir fela m.a. í sér gerð nýs sjávar- og náttúrugripasafns, byggingu hvalalaugar í landi, gerð sjókvíar í Klettsvík, rannsóknaraðstöðu, gestastofu og margt fleira. Ekki spillir svo fyrir að með þessu verða Vestmannaeyjar orðnar hluti af kynningarefni og áherslum eins stærsta og virtasta skemmtifyrirtækis í heimi sem tók á móti rúmlega 60 milljónum gestum í fyrra,�?? segir Elliði að lokum.