Boy George, ásamt upprunalegu félögum sínum í Culture Club, þeim Roy Hay, Mikey Craig og Jon Moss, kemur til Íslands og heldur tónleika í Laugardalshöll 12.nóvember næstkomandi. Já, orginal Culture Club, ásamt stórhljómsveit, taka alla sína stærstu smelli í Höllinni.
Nik Kershaw ásamt Todmobile, sem héldu frábærlega vel heppnaða tónleika í Hörpu í nóvember í fyrra, eru sérstakir gestir og hita upp fyrir Boy George og félaga og Siggi Hlö verður sérstakur veislustjóri kvöldsins. Allir geta verið sammála um það að við finnum ekki betri partýstjóra en Sigga þegar kemur að eitís veislu af þessari stærðargráðu.
Miðasala hefst fimmtudaginn 7.september á tix.is
Sagan í stuttu máli
Culture Club var fyrsta hljómsveitin til að ná þremur lögum inn á top 10 listann í Bandaríkjunum af fyrstu breiðskífu sinni síðan Bítlarnir léku sama leik 20 árum áður.
�?egar maður rifjar upp tónlist níunda áratugarins er það Culture Club, með hinn frumlega Boy George í broddi fylkingar, sem kemur einna fyrst upp í hugann. Culture Club var stofnuð árið 1982 í London af þeim Boy George (George Alan O´Dowd), Roy Hay, Mikey Craig og Jon Moss sem skipa sveitina enn í dag.
�?að var alveg ljóst, allt frá því fyrsta stóra plata þeirra, Kissing To Be Clever, kom út að þessi sveit væri að koma inn í tónlistarheiminn með alveg nýjan blæ. �?að var erfitt að taka ekki eftir Boy George, sem skartaði síðum fléttum, augnskugga í tonnavís og litskrúðugum fatnaði. Mjúka, sálarfulla röddin hans hljómaði vel í útvarpinu í bílnum. Eftir að fyrstu tvær smáskífur þeirra náðu ekki að rata inn á vinsældarlistann fór smáskífan �??Do You Really Want to Hurt Me�?� beint á toppinn og inn í hjörtu tónlistarunnenda um allan heim. �?essi smellur, sem var fyrstur í röð margra, opnaði ekki aðeins dyr þeirra inn í tónlistarheiminn, heldur vakti hann líka ýmsar spurningar Hver var þessi málaði Boy? Og það sem skipti meira máli, Af hverju vorum við svona upptekin af honum?
�?egar önnur breiðskífa þeirra Colour by Numbers, kom inn í tónlistarheimiinn eins og hvirfilbylur, þekkti hvert mannsbarn Culture Club. Platan seldist í um 10 milljónum eintaka í Bandaríkjunum og í 50 milljónum um allan heim. Lögin Church of the Poison Mind, Miss Me Blind, It�??s a Miracle og Karma Chameleon flugu upp vinsældalistana.
Sveitin sendi frá sér 11 alþjóðlega smelli, þar af 10 sem náðu inn á top 40 í Bandaríkjunum. Árið 1984 fékk Culture Club Grammy verðlaun sem bestu nýliðar í tónlistarheiminum. Í heimalandi sínu, Bretlandi, áttu þeir 12 topp 40 smelli á árunum 1982 til 1999.
Culture Club sló mörg met. Hún var fyrsta sveitin í tónlistarsögunni til að fá breiðskífu stimplaða sem Demant í Kanada (1 milljón seld eintök). Hún var einnig fyrsta sveitin til að ná þremur smáskífum af fyrstu breiðskífu inn á topp 10 listann í Bandaríkjunum, síðan Bítlarnir voru og hétu sem er ótrúlegt afrek. Smáskífan þeirra Karma Chameleon var ein söluhæsta smáskífa ársins 1983, með 1,5 milljón seld eintök á heimsvísu.
�?að er því óhætt að segja að Culture Club sé ein vinsælasta sveit níunda áratugarins. Með Boy George í broddi fylkingar markaði sveitin ákveðin tímamót og kom með nýjan og ferskan blæ inn í tónlistina. Ekki bara sem flytjendur tónlistar, heldur sem skemmtikraftar, með hinn ótrúlega litríka og skemmtilega Boy George fremstan í flokki, sem með klæðaburði sínum og fasi öllu lífgaði svo sannarlega upp á þennan áratug, sem var nú fyrir ótrúlega litríkur og skemmtilegur.
Boy George og Culture Club hreif fólk með sér í gleðinni og þannig verður stemningin í Höllinni 12.nóvember næstkomandi.
NIK KERSHAW og Todmobile
Eitís goðsögnin Nik Kershaw, sem Elton John kallaði �??besta lagasmið sinnar kynslóðar�?�, kemur fram ásamt Todmobile sem sérstakur gestur og hitar upp fyrir Culture Club í Laugardalshöll. Að öðrum áratugum síðustu aldar ólöstuðum var gróska og fjölbreytileiki popp- og rokktónlistar þess níunda óviðjafnanlegur. Nik Kershaw tróndi á toppi nýrómantísku bylgjunnar sem reis hvað hæst á fyrri hluta áratugarins og bæði gaf og tók áhrif frá tíðaranda þar sem umbúðirnar skiptu ekki síður máli en innihaldið. En Nik sannar enn og aftur að góð tónlist stendur af sér allar tískusveiflur.
Siggi HL�?
Vinsælasti útvarpsmaður á Íslandi, Siggi Hlö, mun síðan hita upp frá opnun Hallarinnar og fram að tónleikum. Við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af stemningsleysi, því þessi gleðipinni er sennilega mesti sérfræðingur landsins í eitístónlist og mun að sjálfsögðu sjá til þess að við verðum í rétta forminu þegar að tónleikunum sjálfum kemur.
�?etta allt ætlum við að sjá og heyra, já og upplifa sunnudagskvöldið 12.nóvember, í sannkallaðri eitís veislu.
Aðeins er um þessa einu tónleika að ræða og takmarkað miðaframboð, þar sem um sitjandi tónleika er að ræða�?�..þó flestir verði sennilega standandi í þessari miklu veislu.
Miðasala og upplýsingar á tix.is.