Andrea Guðjóns Jónsdóttir er matgæðingur vikunnar - Humarpítsa & frönsk súkkulaðikaka
�?g þakka Berglindi frænku kærlega fyrir áskorunina og ætla að bjóða ykkur upp á geggjaða humarpítsu og svo franska súkkulaðiköku á eftir.
�?� Pitsudeig (keypt eða heimatilbúið)
�?� 2 msk smjör
�?� 500 gr humar
�?� 2-3 pressaðir hvítlauksgeirar
�?� 1 dl fersk steinselja
�?� svartur pipar
�?� 2-4 msk pítusósa
�?� 2-4 msk 36% sýrður rjómi
�?� 1 dl fetaostur, hreinn
�?� hálft stykki af hvítlauks brie, skorin í þunnar sneiðar
�?� handfylli af klettasalati
�?� 2-3 msk pistasíuhnetur, saxaðar
�?� olífuolía til að dreifa yfir.
Hitið ofninn í 220 gráður. Hitið smjör á pönnu og steikið humar, hvítlauk og steinselju í stutta stund eða þar til humarinn byrjar að vera bleikur. Bragðbætið með salti og pipar. Hrærið sama pítusósunni, sýrða rjómanum og smyrjið á deigið. Raðið humrinum, fetaostinum og hvítlauksbrie ofan á og bakið í 12-15 mín. Dreifið klettasalati, pistasíum og ólífuolíu yfir þegar pitsan er tekin úr ofninum.
Frönsk súkkulaðikaka
Botn:
�?� 2 dl sykur
�?� 200 gr smjör
�?� 200 gr suðusúkkulaði
�?� 1 dl hveiti
�?� 4 stk egg.
Súkkulaðikrem:
�?� 150 gr suðusúkkulaði
�?� 70 gr smjör
�?� 2-3 msk síróp.
Aðferð-botn:
�?eytið eggin og sykurinn vel saman. Bræðið smjörið og súkkulaðið saman við vægan hita í potti. Blandið hveitinu saman við eggin og sykurinn. Bætið bráðnu súkkulaðinu og smjörinu að lokum varlega út í deigið. Bakið í vel smurðu tertuformi (ath. ekki lausbotna) við 170°C í 30 mínútur.
Aðferð �?? krem:
Látið allt saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Kælið bráðina svolítið og berið hana síðan á kökuna þegar hún hefur kólnað.
Kakan á að vera blaut í miðjunni. Gott er að bera kökuna fram með rjóma eða ís og berjum.
�?g skora á Fjólu Sif Ríkarðsdóttur sem næsta matgæðing.

Nýjustu fréttir

Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.