Georg Eiður Arnarson - Fiskveiðiárið 2016/17
�?ann fyrsta september byrjaði nýtt fiskveiðiár og því rétt að skoða það sem var að enda, mjög skrítið fiskveiðiár að baki. Byrjaði með löngu verkfalli sem að sögn sjómanna skilaði engu. Mjög góðri vertíð og þá bæði í bolfiskveiðum og uppsjávarveiðum, verðið hinsvegar á bolfiskinum hefur verið afar lélegt og þá sérstaklega verðlagsstofuverðið sem margar útgerðir með vinnslu greiða. Verðið erlendis, hinsvegar hefur verið með ágætum og því góður gangur í gámaútflutningum.
Lélegt verð í beinum viðskiptum hinsvegar hefur annars orðið til þess að æ verr gengur að manna þau skip sem landa hjá eigin vinnslu og dæmi um það að flytja verður inn sjómenn til þess að halda úti sumum bolfiskveiðiskipum. Ekki góð þróun það og nokkuð ljóst að leita verður annarra leiða til þess að leysa það.
Af minni eigin útgerð er það að segja að ekkert gengur að selja bátinn og það þrátt fyrir að ég sé búinn að lækka hann um helming í verði. Sem betur fer tókst mér þó að losna við kvótann en Ísfélagsmenn tóku kvótann fyrir mig og losuðu mig því við ansi þungan andardrátt bankans niður um hálsmálið á mér og kann ég þeim Ísfélagsmönnum miklar þakkir fyrir.
�?að er ekkert grín að skulda í bankakerfinu okkar og vextirnir maður, vá, er nema furða þó bankarnir græði. �?g er því kvótalaus og hef frekar lítinn áhuga á að róa enda er ennþá þannig að veiðigjöld eru greidd af lönduðum afla og því þessi ríkisstjórn líka braskararíkisstjórn eins og sú á undan. �?að eina jákvæða sem ég hef séð er að línuívilnun er komin á allar tegundir en það hrekkur skammt enda bara fyrir landbeittar línuveiðar.
Veiðiráðgjöf Hafró er enn einu sinni skrítin en eins og ég hafði áður spáð fyrir um þá lækkar langan enn og hefur nú lækkað um 50% á aðeins 2 árum. Viðbót í ýsu er hinsvegar góð en í þorski allt of lítil. Ufsavíðbótin fer hinsvegar í flokk með launguviðbótinni síðustu ár sem tóm vitleysa enda mörg ár síðan ufsakvótinn hefur náðst.
En hvað sem verður þá hefur fiskverðið hækkað að undanförnu og það er aðeins aukning á sumum tegundum og á þeim nótum óska ég öllum sjómönnum og útgerðarmönnum gleðilegs nýs kvótaárs.

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.