Gunnar Heiðar �?orvaldsson og Cloe Lacasse voru valin leikmenn ársins í meistaraflokkum karla og kvenna ÍBV 2017. �?etta var tilkynnt á lokahófi fótboltans í Golfskálanum þar sem var mikið um dýrðir enda ástæða til fagna. Tveir bikarmeistaratitlar og trygg sæti í efstu deild er ekki lítið afrek hjá ekki stærra félagi. Konurnar enduðu í fjórða til fimmta sæti með Stjörnunni með 33 stig. Karlarnir sluppu fyrir horn í lokaumferðinni með öruggum sigri á KA og enduðu í níunda sæti með 25 stig. Fréttabikarana hlutu Felix �?rn Friðriksson og Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir.
�??Uppskeran eftir sumarið er frábærir tveir bikarmeistartitlar og Evrópukeppni. Í sumar unnum við okkar fyrstu stóru titla síðan 2004 kvenna megin og frá 1998 karla megin. Tvöfaldir bikarmeistarar 2017. Geri aðrir betur og til hamingju öll,�?? sagði Íris Róbertsdóttir, formaður ÍBV-íþróttafélags um árangur sumarsins. �??�?að að eiga bæði karla- og kvennalið sem bikarmeistara á sama tímabili er frábær árangur og aðeins ÍA, Val og KR hefur tekst það.
Eftir að hafa farið yfir helstu punkta sumarsins sagði Íris framtíðina bjarta hjá ÍBV. �??Gróska er í knattspyrnunni hjá yngri flokkum og erum við með marga góða og efnilega þjálfara en það eru blikur á lofti í ákveðnum flokkum þó sér í lagi hjá stúlkunum. Við þurfum að vera vakandi og vinna að því saman að bæta umgjörðina.�??
Íris sagði það kosta mikla vinnu og skipulagningu hjá ráðunum að láta hlutina ganga og líka hjá öðrum sjálfboðaliðum sem koma að starfinu. �??Fyrir hönd aðalstjórnar vil ég segja; Takk fyrir ykkar framlag; án ykkur væri þetta ekki hægt. Einnig vil ég þakka ykkur starfsmenn og þjálfarar fyrir ykkar vinnu á þessu tímabili.
Félag eins og ÍBV íþróttafélag er stolt okkar bæjarfélags og þegar vel gengur erum við glöð og sem betur fer hefur þetta verið gleðisumar. Við erum þekkt fyrir gleðina, stemninguna og sigurviljann og eigum að nýta okkur það óspart. Stemningin sem var á Laugardalsvelli í báðum bikarleikjunum og móttökurnar þegar heim var komið með bikar er eitthvað sem ég veit að við öll viljum upplifa fljótt aftur. �?ví þegar við vinnum vinnuna og finnum gleðina stöndum við okkur ekki bara best á vellinum heldur líka í stemningunni og munum að sigurhefðin �?? sem er enn til staðar- er mikilvægur og nauðsynlegur partur í trúnni á verkefnið og framtíðina. Við eigum okkar styrkleika, nýtum þá og þá er framtíðin björt. �?g hlakka til næsta tímabils,�?? sagði Íris að endingu.
Páll Hjarðar formaður knattspyrnuráðs karla og Sigþóra Guðmundsdóttir afhentu viðurkenningar sem komu í hlut leikmanna í meistaraflokkum og öðrum flokki.
Annar flokkur: Markahæsti leikmaðurinn: Breki �?marsson. Mestu framfarir: Guðlaugur Gísli Guðmundsson. ÍBV-arinn Ásgeir Elíasson og Leikmaður ársins: Birkir Snær Alfreðsson.
Í öðrum flokka sýndi Clara Sigurðardóttir mestu framfarirnar og leikmaður ársins varð Sigríður Sæland.
Fréttabikarana, sem efnilegustu leikmenn sumarsins, fengu þau Felix �?rn Friðriksson og Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir.
Markahæsti leikmaður meistaraflokks var Gunnar Heiðar �?orvaldsson með tíu mörk. Mikilvægasti leikmaðurinn var valinn Atli Arnarson og Leikmaður ársins Gunnar Heiðar �?orvaldsson.
Í meistaraflokki kvenna varð Cloe Lacasse markahæst með 13 mörk, mikilvægasti leikmaðurinn var valin Sigríður Lára Garðarsdóttir og Leikmaður ársins Cloe Lacasse.