Hvar erum við?
Í öllum samfélögum gegna fjölmiðlar mikilvægu hlutverki. Eitt mikilvægasta hlutverkið er að vera vettvangur gagnrýni og frjálsra skoðanaskipta. Með þetta í huga skoðaði ég skrif og umræðu bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna um netmiðilinn Eyjar.net nú síðustu daga. �?g verð að viðurkenna að við lesturinn setti að mér hroll. �?g fékk á tilfinninguna að ég gæti varla verið í nútímanum og varla í frjálsu samfélagi. En hver vegna segi ég þetta? �?g nefni hér nokkur dæmi.
Gagnrýni sem miðillinn setur fram almennt á störf bæjarstjórnar eru skilyrðislaust og án nokkurs rökstuðnings dæmd dauð og ómerk. Hún sé sett fram af einhverjum annarlegum hvötum og sé einungis árás á Vestmannaeyjar.
Miðillinn lét gera könnun á viðhorfum Vestmannaeyinga til samgangna. Niðurstaðan var mjög eindregin í þá átt að Vestmannaeyingar eru ósáttir. Í stað þess að taka mark á niðurstöðunum og nýta sér þær réðust talsmenn sjálfstæðismanna á miðilinn og sökuðu hann um niðurrifsstarfsemi.
Nú síðast ruddust bæjarfulltrúar sjálfstæðismanna fram á ritvöllinn bæði sem eldri og yngri deild og gerðu almennt lítið úr miðlinum og höfðu í hótunum bæði beint og óbeint.
�?essi þrjú dæmi læt ég nægja að þessu sinni. �?au skýra hins vegar vel það sem ég sagði hér í upphafi. �?að er sem sé ekki í lagi í samfélagi þar sem stjórnendur þola ekki gagnrýni og gera lítið úr þeim sem hana setja fram. Fjölmörg dæmi úr mannkynssögunni staðfesta þetta. �?að er ekki í lagi að ráðast á tjáningarfrelsið eins og sjálfstæðismennirnir í bæjarstjórn gera. Vestmannaeyingar eiga betra skilið en slíkar trakteringar.
Lifi frjáls fjölmiðlun!
Ragnar �?skarsson