Stofnfundur Miðflokksfélags Suðurkjördæmis verður haldinn í Tryggvaskála á Selfossi miðvikudaginn 13. desember 2017, kl. 20:00.
Hlutverk kjördæmafélagsins nú í upphafi verður að styðja við félagsstarf innan Suðurkjördæmis, aðstoða við stofnun staðarfélaga og ýta úr vör í samráði við félagsmenn í kjördæminu undirbúningi fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara vorið 2018.
Sérstakir gestir fundarins verða þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Birgir �?órarinsson þingmaður Suðurkjördæmis.
Allir velkomnir og fundarmenn eru hvattir til að taka með sér gesti.
Mótaðu framtíðina með okkur, Miðflokkurinn í Suðurkjördæmi www.facebook.com/midflokkurinn.is/