Sara Sjöfn: Má ekkert?
238 fjölmiðlakonur sendu frá sér yfirlýsingu á mánudaginn, ég var ein af þeim, til stuðning þeirra sem sagt hafa sína sögu og fordæma í leiðinni ofbeldi, áreiti eða niðurlægingu á forsendum kynferðis. �?ið þekkið þetta öll “;”metoo, vandamálið er stórt og það er okkar allra, allsstaðar.
Fleiri hundruð kvenna hafa stigið fram allstaðar í heiminum. Sjokkerandi? Nei, svo sem ekki, mögulega fyrir einhvern karlinn og sennilega einhverjir sem iða í skinninu og enn fleiri sem hafa áttað sig á því sem þeir hafa gert, en þótt í lagi. En það er ekki í lagi.
�?að er ekki verið að stimpla alla karlmenn og ýta út í horn, það eru til fullt af góðum körlum sem mundu ekki detta það til hugar, en það er ekki verið að ræða þá núna!
�?að sem þótti fyndið áður fannst okkur konunum aldrei fyndið. Konurnar sem eru að stíga fram undir formerkjum “;”metoo eru ekki að segja sögur af pöbbanum, heldur úr vinnunni. Ekki misskilja mig, það er ekki sérstakt leyfi á pöbbanum eða undir áhrifum, þó margir skýli sér bakvið það. En að fá ekki gagnkvæma virðingu í vinnunni útaf því þú ert kona, er gjörsamlega óboðlegt og sem betur fer erum við flest sammála um það. �?að þarf bara stoppa fingralöngu pervertana með sóðakjaftinn.
Og ef þú ert að velta fyrir þér hvort ekkert megi þá er svarið nei, allavega þegar kemur að áreiti, niðurlægingu eða ofbeldi á forsendum kynferðis.
Eitt annað, karlmenn! Ef það eru málefni sem brenna á ykkur þar sem ykkur finnst karlmenn eða drengir verða undir, girðið ykkur í brók, látið í ykkur heyra og takið þátt í baráttunni, gerum þetta saman og búum til samfélag fyrir alla til þess að búa í! Áfram jafnrétti, áfram virðing!

Nýjustu fréttir

Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.