Tímamót voru í starfi Miðflokksins miðvikudaginn 13. desember s.l. þegar fyrsta kjördæmafélag flokksins, Miðflokksfélag Suðurkjördæmis var stofnað á Selfossi. Mikill fjöldi sótti stofnfundinn víða að úr kjördæminu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Birgir �?órarinsson, þingmaður Suðurkjördæmis ávörpuðu fundinn.
Hlutverk kjördæmafélagsins nú í upphafi verður að styðja við félagsstarf innan Suðurkjördæmis, aðstoða við stofnun staðarfélaga og ýta úr vör í samráði við félagsmenn í kjördæminu undirbúningi fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara vorið 2018. �?eir sem hafa áhuga á því að taka þátt í málefnastarfi flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 geta nú haft samband við stjórn félagsins í Suðurkjördæmi.
Stjórn og varamenn félagsins skipa Einar G. Harðarson formaður, �?skar H. �?órmundsson, Sverrir �?mar Victorsson, Margrét Jónsdóttir, Herdís Hjörleifsdóttir, Sigrún Gísladóttir Bates varaformaður, G. Svana Sigurjónsdóttir og Sæmundur Jón Jónsson.
Mótaðu framtíðina með okkur, Miðflokkurinn í Suðurkjördæmi www.facebook.com/midflokkurinn.is/ sudur@midflokkurinn.is