Nýtt frumvarp til fjárlaga eru geysileg vonbrigði fyrir HSU
�??Nýtt frumvarp til fjárlaga eru geysileg vonbrigði fyrir HSU og þjónustu við íbúa Suðurlands.�?? Svona byrjar föstudagspistill Herdísar Gunnarsdóttur forstjóra HSU.
�?? Á þessu ári hefur okkur á HSU verið tíðrætt um þá fordæmalausu aukningu sem orðið hefur í þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá sameiningu í árslok 2014. Nú í áratug hefur stofnunin verið undirfjármögnuð og fjársvelt líkt og aðrar heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. �?ær viðbætur sem settar hafa verið í reksturinn síðustu ár hafa dugað skammt. Sífellt er krafa um meiri afköst fyrir minna fjármagn. Eftirfarandi staðreyndir blasa við úr starfseminni okkar. Í fjárveitingum til HSU hefur enn ekki verið bætt fyrir þessa aukningu sem öll tilheyrir lögbundinni heilbrigðisgrunnþjónustu á Suðurlandi:
  • Heildarfjöldi samskipta í heilsugæslu á HSU jukust um 7% milli áranna 2015 og 2016.
  • Komur á BMT á Selfossi hafa aukist um 15% milli áranna 2015 og 2016.
  • Sjúkraflutningar í umdæmi HSU jukust um 11% milli áranna 2015 og 2016.
  • Biðtími eftir sjúkraflugi til Vestmannaeyja er ekki ásættanlegur.
  • Hagrætt var um 120 milljónir á HSU með uppsögnum á árinu 2016.
  • Lokað var 40 hjúkrunarrýmum á Suðurlandi nú á árinu.
  • Íbúafjöldi á vesturhluta Suðurlands hefur aukist um 9% frá 2014.
�?g fagna heilshugar yfirlýsingum nýs heilbrigðisráðherra um þá stefnu að standa skuli vörð um opinbera heilbrigðisþjónustu. �?g fagna líka heilshugar stórhuga innspýtingu í heilbrigðiskerfið. �?að er ljóst að aðstæður nú eru óvenjulegar í stjórnmálunum og mjög lítill tími gafst í að vinna nýtt frumvarp. Í frumvarpinu hefur landsbyggðin þó algjörlega gleymst. Í núverandi frumvarpi til fjárlaga er bætt við tuttugu og eitt þúsund milljónum í heilbrigðiskerfið en af þeirri upphæð fá heilbrigðisumdæmin á landsbyggðinni lítið sem ekkert. Fyrir einn milljarð af þessum 21 milljarði hefði verið hægt að endurreisa heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni allri og tryggja innviði og kaupa nauðsynlegan lágmarksbúnað sem víða er úr sér genginn og ónýtur á heilbrigðisstofnunum.
Í heilbrigðisráðuneytinu liggur fyrir vel rökstutt erindi frá HSU um að á árinu 2018 vanti 300 milljónir króna til reksturs heilsugæslu, bráðamóttöku og sjúkraflutninga, ásamt fármagni til endurnýjunar tækja. Erindi okkar til stuðnings kom út í dag hlutaúttekt Embættis landlæknis á starfsemi heilsugæslusviðs HSU þar sem þeim ábendingum er beint til Velferðarráðuneytisins að taka ákvörðun um að hafa bráðamóttöku á Selfossi. �??Embætti landlæknis telur mikilvægt að heilbrigðisyfivöld taki ákvörðun um að bráðamóttaka sé fyrir hendi á Selfossi og taki tillit til þess í fjárveitingum�??.
Samkvæmt frumvarpinu nú fær HSU 60 milljón kr. aukningu frá frumvarpinu sem lagt var fram í september af síðustu ríkisstjórn. Vonbrigði okkar eru mikil. �?essar 60 milljónir duga á engan hátt til að halda í horfinu né til þess að gera raunhæfar rekstaráætlanir. Til að setja þessar tölur í samhengi þá eru þessi upphæð 0,003% af heildarinnspýtingunni í heilbrigðisþjónustuna. Á svæðinu búa um 8% landsmanna sem þekur um 30% af landinu okkar. Við getum ekki leynt vonbrigðum okkar. Á HSU starfar framúrskarandi hópur fagmanna og stjórnenda sem eru reiðubúin að leita allra leiða til uppbyggingar. Við munum áfram starfa á þeirri braut. Við neitum að trúa því að niðurskurður blasi við í grunnheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Við bendum á að þetta hljóti að vera mistök sem verða leiðrétt í meðförum þingsins.
Við hlökkum til að taka á móti nýjum heilbrigðisráðherra sem hefur lýst yfir áhuga sínum á að koma í heimsókn til okkar á HSU.�?? sagði Herdís að lokum.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.