Trauti Hjaltason - Skemmtileg aðkoma bæjarbúa
Á síðasta fundi bæjarstjórnar voru mjög verkefni sem hafa verið í umræðunni afgreidd í fjárhagsáætlun. �?annig munu verkefnin ekki stranda á fjármagni þegar og ef tekst að fara í framkvæmdirnar sem fyrirhugaðar eru.
Afar skemmtileg er aðkoma bæjarbúa og félagasamtaka að verkefninu ,,Villtu hafa áhrif�?� sem hefur tekist vel undanfarin ár. �?ar gefst öllum tækifæri til að koma fram ábendingum eða senda inn umsókn um fjármagn í ákveðin verkefni. Takk allir sem lögðu hönd á plóg þar.
�?g tók saman nokkur atriði sem samþykkt var að setja fjármagn í. Listinn er þó alls ekki tæmandi.
Skólar og fjölskyldan:
�?� Kirkjugerði. Framkvæmdir eru hafnar við viðbyggingu. Lóð lagfærð, þá stendur til að byggja sal, stækka kaffistofu starfsmanna og fl.
�?� Keyptur hefur verið körfuboltavöllur. Áætlað er að staðsetja hann austan við núverandi sparkvöll á Barnaskólalóðinni.
�?� Barnaskóli viðbygging. Stækka aðstöðu fyrir starfsfólk og kennara.
�?� Skólalóðir. Annar áfangi í framkvæmdum áætlaður 2018.
�?� Fjölskyldulaut í hrauninu. Nýja hraunið er heill ævintýraheimur út af fyrir sig.
�?� Bæta við bekkjum á Stakkó.
Íþróttir og tómstundir
�?� Hreystivelli verður komið upp á heppilegum stað.
�?� Íþróttahús fimleikagryfja. Gera þaf lagfæringar á fimleikagryfju og umhverfi hennar.
�?� Styrkja kaup á þremur glerskápum sem komið verður fyrir í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og munu skáparnir geyma muni íþróttafélaga sem og afreksmanna.
�?� Sýna leiki Íslands á HM á skjá þar sem bæjarbúar geta komið saman.
�?� �?ryggisgirðingu umhverfis Hásteinsvöll skv. kröfum KSÍ.
�?� Fimleikafélagið Rán gæðastarf í þjálfun.
�?� Pússa og lakka gólf gamla í íþróttasal.
�?� Sólpallur sunnan við Týsheimili.
�?� Lagfæringar á innisundlaug og kalda pottinum.
Eðalborgarar
�?� Íbúðir aldraðra og tengibygging við Hraunbúðir.
�?� Framkvæmdir við nýtt sambýli og íbúðir fatlaðra fara í gang á gamla Ísfélagsreitnum.
�?� Hraunbúðir viðbygging. Lagfæra þarf útisvæði vegna nýrrar álmu við Hraunbúðir.
Menning og stofnanir
�?� Bæjarskrifstofurnar allar á einn og sama stað á 3. hæð Fiskiðjunnar.
�?� Ráðhúsið er afar illafarið af rakaskemmdum. Framkvæmdir eru þegar hafnar og verða unnar í þeim áföngum.
�?� Bílastæði og lagfæring lóðar austan Fiskiðju. Við þetta fjölgar bílastæðum gríðarlega í miðbænum.
�?� Ný hjólaskófla í �?jónustumiðstöð, mun t.d. auka afköst við snjómokstur.
�?� Nýr körfubíll fyrir slökkvuliðið til að komast í meiri hæð.
�?� Á seinustu árum hefur verið mikið átak í að bæta gangstéttir og endurnýja malbik. Í ár er gert ráð fyrir 60 milljónum í gatnagerð. Til viðbótar eru lagðar til 20 í sérsamþykktum
�?� Kanna möguleikann á því að sett verði upp �??Velkomin til Eyja�?� skilti á hrauninu við innsiglinguna.
�?� Nýtt loftræsikerfi í Safnahúsið.
Tekið skal fram að þessi upptalning á bara við um þá viðbót sem gert er á öllu sem var þegar inni við fyrstu umræðu fjárhagsáætlunar. �?að er nánast allt sem viðkemur rekstri og þjónustu sem þú þegar er til staðar. Eins og sést er mikið af skemmtilegum hlutum í gangi og framundan.
Gleðilega hátíð!
Trausti Hjaltason,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Ekkert áframhaldandi flug
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.