Byggingarhraðinn er mikill án þess að slá af gæðum
Við sögðum frá hjónum í síðasta tölublaði sem voru að byggja sér einingahús úr timbri, rúmlega 90 fermetrar á einni hæð við Hásteinsveg. Húsið var keypt í gegnum Húsasmiðjuna. �??Húsasmiðjan bíður einingahús í samstarfi við Seve sem er eitt af stærstu fyrirtækjum í einingahúsasmíði í Eistlandi. Húsin eru á mjög hagstæðu verði en í Noregi má sjá um það bil átta hundruð slík hús af öllum stærðum og gerðum. �?á hafa húsin verið seld til Svíþjóðar og Sviss,�?? sagði Ingvar Skúlason, ráðgjafi á fagsölusviði Húsasmiðjunnar í samtali við Eyjafréttir.
�??Húsasmiðjan hefur áratuga reynslu í framleiðslu og sölu á einingahúsum, en fyrsta húsið var reist í Melgerði árið 1957. Við byggjum því á gömlum grunni. Nýlega hófum við samstarf við Seve í Eistlandi en þeir hafa framleitt hús í marga áratugi. �?etta eru íbúðahús, parhús, smáhýsi og í rauninni einingahús af öllum stærðum og gerðum. Nefna má leikskóla, grunnskóla ásamt alls kyns húsum sem henta vel í ferðaþjónustu,�?? segir Ingvar og bendir á að núna séu hús að rísa víðsvegar um landið.
�?að tekur um 12 vikur að fá hús afgreitt frá framleiðanda, �??sem er vanalega sá tími sem tekur að fá byggingarleyfi og steypa grunn og plötu. Byggingarhraðinn er því mikill án þess að slá af gæðum en húsin eru vönduð og vel einangruð að norskum kröfum sem eru meiri en við höfum hér á landi. Norðmenn leggja til dæmis meira í hitaeinangrun. Við erum líka að bjóða margskonar lausnir fyrir ferðaþjónustuna, það eru smærri hús af stærðinni 22-30 fermetra. �?etta eru einingahús með gistirými, snyrtingu og eldunaraðstöðu,�?? sagði Ingvar.
Einingahúsin eru ódýr en vandaður byggingamáti. �??Með því að velja þessa leið styttum við byggingartímann til muna og lækkum fjármagnskostnað. Ef fólk kaupir hús af Húsasmiðjunni þá getur kaupandinn keypt allt annað hjá okkur sem þarf til að klára húsið. En við bjóðum baðtæki, eldhúsinnréttingar, hurðar og fleira en húsin er hægt að kaupa á þremur byggingarstigum. Á fyrsta stigi er um að ræða allt byggingarefni sem þarf í húsið, einingarnar, út- og innveggir ásamt innihurðum. Á öðru stigi reisum við húsið og skilum því fullbúnu að utan. Á þriðja stigi er það afhent tilbúið til spörslunar og málunar að innan,�?? sagði Ingvar og bætir við að þetta sé mjög ódýr og góður kostur. Afgreiðslutími er stuttur og húsin eru fljótleg í uppsetningu og einnig er hægt er að velja um margvíslegar utanhússklæðningar hjá Húsasmiðjunni.
Sérfræðingar hjá Húsasmiðjunni ráðleggja kaupendum um hvernig hús hentar best, miðað við hönnun að innan, herbergjastærð, -fjölda og fleira. �??�?að er í raun allt frjálst með hönnun innanhúss en við breytum ekki burðarstruktúr hússins. Húsin henta vel íslenskum markaði og standast allar byggingarkröfur. �?etta er falleg hönnun, einföld og skemmtilegt,�?? segir Ingvar.
�??Við höfum fundið fyrir feykimiklum áhuga á þessum einingahúsum. Við erum nú þegar með fjölmargar pantanir fyrir vorið sem eru í samþykktarferli hjá skipulagsyfirvöldum víðsvegar um landið. Sem staðfestir að þetta er ódýr og góður kostur til að eignast eigið húsnæði. Frábær hús sem gott er að búa í,�?? segir Ingvar.
Frekari upplýsingar um Seve einingahúsin, stálgrindarhús, krosslíms einingahús frá Húsasmiðjunni, svalalokanir og fleira tengt húsasmíði má fá hjá fagsviði í Kjalarvogi þar sem veitt er fagleg og persónuleg þjónusta. Einnig er hægt að skoða heimasíðuna www.husa.is.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.