Eyjakonur enda í þriðja sæti eftir enn eitt tapið gegn Fram
Kvennalið ÍBV í handbolta mætti Fram á útivelli í dag í síðustu umferð Olís-deildar kvenna. Eyjakonur töpuðu leiknum með fimm mörkum og enda því í þriðja sæti Olís-deildarinnar, lokatölur 28:23. Var þetta fjórða viðureign liðanna í vetur en allar hafa þær endað með sigri Fram. �?essi sömu lið mætast síðan í undanúrslitum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Fram var með yfirhöndina allan leikinn og skoruðu t.a.m. sex fyrstu mörk leiksins en staðan í hálfleik var 14:8.
Í síðari hálfleik fór munurinn mest í átta mörk og minnst í fjögur og sigurinn því aldrei í neinni teljandi hættu.
Sandra Erlingsdóttir var atkvæðamest í liði ÍBV í dag með 11 mörk, þar af átta úr víti. Guðný Jenný Ásmundsdóttir varði níu skot í markinu.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.