Kærunni vísað frá dómi
Eins og greint var frá í gær kærði handknattleiksdeild Selfoss framkvæmd leiks Fram og ÍBV í Olísdeild karla sem fram fór á miðvikudag. Í gær var svo kveðinn upp úrskurður í umræddu kærumáli.
�?ar segir að þar sem kærandi í þessu máli hafi ekki verið aðili að umræddum leik verði ekki fallist á að kærandi uppfylli það skilyrði 33. gr. laga HSÍ að misgert hafi verið við hann þótt dómarar hafi látið tiltekið atvik óátalið. Með vísan til þessa er málinu vísað frá dómstólnum þar sem kæranda skortir málskotsheimild skv. ákvæði 33. gr. laganna. Ekki er tekin afstaða í þessum úrskurði til síðara skilyrðis sama ákvæðis, þ.e. hvort kærandi hafi hagsmuni af niðurstöðu málsins. Í úrskurðarorðum dómstóls Handknattleikssambands Íslands segir að kæru handknattleiksdeildar Umf. Selfoss gegn Íþróttabandalagi Vestmannaeyja og handknattleiksdeild Fram dags. 22. mars 2018 sé vísað frá dómi.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.