Eyjamenn áfram í Áskorendabikarnum eftir stórsigur - myndir
ÍBV rótburstaði Krasnodar í átta liða úrslitum Áskorendabikars Evrópu í dag, lokatölur 41:28. Eyjamenn mæta því annað hvort rúm­enska liðinu Turda eða norska liðinu Fyll­ingen í undanúrslitum.
Heimamenn byrjuðu leikinn illa og voru lengi vel undir í fyrri hálfleiknum. Áður en hálfleikurinn var úti voru Eyjamenn hins vegar búnir að snúa blaðinu við og leiddu með fjórum mörkum þegar flautan gall, hálfleikstölur 19:14.
Eftir þetta rúlluðu Eyjamenn yfir gestina sem áttu engin svör við sterkum varnarleik og vel út færðum sóknarleik ÍBV.
Kári Kristján Kristjánsson var markahæstur í liði ÍBV með níu mörk, einu marki betur en Sigurbergur Sveinsson sem skoraði átta. Næstur kom Theodór Sigurbjörnsson með sjö mörk en hann var að spila sinn fyrsta leik eftir bikarúrslitaleikinn. Aron Rafn Eðvarðsson var einnig frábær í markinu með 18 skot varin.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.