Nýjar reglur vegna brota á umferðarlögum
Helstu verkefni lögreglunar í liðinni viku voru að tveir ökumenn voru stöðvaðir í vikunni sem leið vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna. �?á liggja fyrir fimm aðrar kærur vegna brota á umferðarlögum m.a. vanræksla á notkun öryggisbelta, notkun farsíma við akstur án handfrjáls búnaðar og akstur án réttinda.
Rétt er að minna á að á vef Samgöngustofu er að finna nýja reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum sem tekur gildi þann 1. maí nk.

1. gr.
Sektir allt að 300.000 krónum og sviptingu ökuréttar vegna einstakra brota á ákvæðum
umferðarlaga og reglna, settra samkvæmt þeim, skal ákvarða í samræmi við fyrirmæli og leiðbeiningar
sem birtast í viðaukum I-II við reglugerð þessa. Brot sem ekki eru sérstaklega tilgreind í við-
aukum með reglugerð þessari, varða sektum frá kr. 20.000 allt að kr. 300.000 eftir eðli og umfangi
brots.
Heimilt er að víkja frá ákvæðum í viðaukum ef veigamikil rök mæla með því.
2. gr.
�?egar ákvörðun er tekin um sekt vegna brota á tveimur eða fleiri ákvæðum umferðarlaga, eða
reglna settra samkvæmt þeim, skal sektin vera samtala sekta vegna hvers brots um sig. Samtala sekta
sem lögreglustjóri lýkur með lögreglustjórasekt má þó aldrei fara fram úr þeirri hámarksfjárhæð sem
ákveðin er í reglugerð um lögreglustjórasektir.
Lögreglustjóra ber að veita sakborningi 25% afslátt af sektarfjárhæð sem ákveðin er í lögreglustjórasekt,
ef sakborningur greiðir sektina ásamt sakarkostnaði að fullu innan 30 daga frá dagsetningu
sektar á vettvangi, sektarboðs eða undirritun sektargerðar sem sakborningur hefur gengist skriflega
undir.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með
síðari breytingum, öðlast gildi 1. maí 2018. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 930/2006 um sektir
og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim með áorðnum
breytingum.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.