Bæjarmálafélagið Heimaey var stofnað á fundi í Akóges núna fyrr í kvöld. Markmið með stofnun félagsins er að bæta samfélagið. �??Vestmannaeyjar er góður staður til að búa á en við getum alltaf gert betur.�?? Formaður félagsins er Leó Snær Sveinsson. Stjórn félagsins var einnig kosin í kvöld, hennar fyrsta verkefni er að skipa kjörnefnd sem fer svo í það að undirbúa lista fyrir komandi sveitastjórnakosningarnar. Listinn verður kynntur 22. apríl.
Tilkynning frá Heimaey:
Samþykkt var einróma á mjög fjölmennum stofnfundi nýs bæjarmálafélags í Vestmannaeyjum í kvöld að bjóða fram lista í sveitastjórnarkosningunum 26. maí næstkomandi. Félagið heitir ,,Fyrir Heimaey�?� og nýkjörinn formaður, Leó Snær Sveinsson segir að markmið þess sé einfaldlega að bæta samfélagið í Eyjum og vera umræðuvettvangur um málefni þess.
Auk Leós voru kosin í stjórn:
Kristín Hartmannsdóttir
Kristín �?sk �?skarsdóttir
Rannveig Ísfjörð
Leifur Gunnarsson
Varastjórn:
Styrmir Sigurðarson
Gústaf Adolf Gústafsson
Halldór Bjarnason
Leó sagði að félagið myndi nú einhenda sér í að setja saman framboðalista og þess væri að vænta að hann verði kynntur sunnudaginn 22. apríl nk.