ÍBV komið yfir í einvíginu gegn ÍR
ÍBV fékk ÍR í heimsókn í kvöld í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Olís-deildarinnar. Eyjamenn reyndust sterkari þegar uppi var staðið og sigruðu leikinn með fjögurra marka mun, 22:18.
Leikurinn fór rólega af stað í markaskorun og var staðan einungis 1:1 eftir tíu mínútnar leik. Mikill hiti var í mönnum í kvöld og sló oft í brýnu milli leikmanna án þess þó að beinlínis upp úr syði. Jafnræði var með liðunum í fyrrihálfleik en það voru heimamenn í ÍBV sem leiddu með einu marki þegar flautað var til hálfleiks, staðan 9:8.
Liðsmenn ÍBV mættu sprækir til leiks í síðari hálfleik og náðu fljótt undirtökunum í leiknum. Svo fór að Eyjamenn sigldu tiltölulega þægilegum sigri í höfn, lokastaða 22:18 eins og fyrr segir.
Kári Kristján Kristjánsson var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk. Aron Rafn Eðvarðsson varði 13 skot í markinu.
Myndir – �?skar Pétur Friðriksson

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.