Vestmannaey VE og Bergey VE, skip Bergs-Hugins, dótturfyrirtækis Síldarvinnslunnar, hafa fiskað afar vel það sem af er ári. Fyrstu þrjá mánuði ársins var afli skipanna 2.900 tonn af slægðum fiski og er verðmæti aflans metið á um 640 milljónir króna.
www.mbl.is
Er þetta mesti afli sem skipin hafa fært að landi á þremur fyrstu mánuðum árs, en það ár sem næst kemst hvað afla varðar er 2009; þá var afli skipanna rúmlega 2.500 tonn.
Veiðiferðirnar tæpir tveir sólarhringar að meðaltali
Á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að í marsmánuði hafi skipin veitt tæplega 1.140 tonn. Hvort um sig voru þau einungis 16 daga á sjó, þannig að meðalafli hvors skips var 36 tonn á dag. �?á var samsetning aflans býsna fjölbreytt en skipin komu alls með 22 tegundir að landi. �?orskur var 35% aflans, ýsa 23%, ufsi 14%, karfi 10% og lýsa 3,5%, svo helstu tegundir séu nefndar.
Segir enn fremur á vef útgerðarinnar að helsta veiðisvæði skipanna frá því í febrúar hafi verið í kringum Vestmannaeyjar og því ekki þurft að sigla langt á miðin.
Í marsmánuði fór hvort skip tvær veiðiferðir í viku og tók hver veiðiferð að meðaltali innan við tvo sólarhringa. Ekki var óalgengt að landað væri fullfermi að lokinni 30 tíma veiðiferð.