Sumardagurinn fyrsti - dagskrá
Sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn. Að venju er dagurinn haldinn hátíðlegur hér í Eyjum líkt og annarsstaðar. Ýmislegt er á dagkránni, meðal annars verður tilkynnt er um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja.
Einarsstofa kl. 11.00
Skólalúðrasveitin leikur vel valin lög.
Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar, þau Herborg Sindradóttir, Sara Dröfn Ríkharðsdóttir, Oktawia Piwowarska og Jón Grétar Jónasson lesa ljóð sem þau völdu sjálf, eftir �?órarinn Eldjárn.
Tilkynnt um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2018.�??
Einarsstofa kl. 13.00
Nemendur Bjarteyjar Gylfadóttur í myndlistarvali Grunnskóla Vestmannaeyja í 8.-10. bekk sýna lokaverkefni sín í Einarsstofu 19. apríl �?? 3. maí. Sýningin mun opna sumardaginn fyrsta, þann 19. apríl, klukkan 13.00. Í lokaverkefnum velja nemendur sér viðfangsefni að eigin vali og læra að útfæra það á skapandi hátt.
Vestmannaeyjabær býður bæjarbúum frítt í sundlaugina og frítt á öll söfn bæjarins í tilefni sumardagsins fyrsta. Opið í Sagnheimum og Sæheimum frá 13.00-16.00 og í Eldheimum frá 13.00-17.00. Opið er í sundlauginni frá 09.00-17.00.
Vestmannaeyjabær óskar bæjarbúum gleðilegs sumars!

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.