Fyrsta skrefið í átt að minni plastnotkun í Eyjum
SAMSUNG CSC
SAMSUNG CSC
Erla Einarsdóttir ásamt fleiri góðum konum er farin af stað af með verkefni sem allir geta verið þátttakendur í. Erla ætlar að fara í samstarf með matvöruverslunum bæjarins og taka skref í átt að minni plastnotkun. Hún er nú að taka gömul efni sem annars væru á leiðinni í ruslið og sauma úr þeim fjölnota matvörupoka sem fólk getur fengið lánaða í matvöruversluninni ef það gleymir sínum heima, því flest eigum við fjölnotapoka og margir gleyma þeim heima. �?egar blaðamaður kíkti við í Líknar húsið í vikunni var Erla ásamt vöskum konum á fullu að búa til poka.
�??Markmiðið er að margt smátt geri eitt stór, einhverstaðar verðum við að byrja,�?? sagði Erla sem þegar hefur fengið jákvætt svar frá matvöruverslunum bæjarins og mun skila pokunum til þeirra 30.apríl. Erla sem er með aðstöðu í kvenfélaghúsinu er núna alla miðvikudaga þar milli fjögur til sex. Hún biðlar til fólks að koma með efni í verkefnið eða hjálpa til, �??Hvort sem það eru gamlir dúkar, rúmföt eða gardínur, allt nýtist,�?? sagði Erla. Einnig má fólk koma og hjálpa, �??hvort sem það er að sauma, sníða eða strauja, ýmislegt sem er hægt að hjálpa við. Einnig er hægt að hafa samband við mig eða Ágústu og við komum og sækjum efnið, ef það hentar betur. �?etta getur verið okkar framtak í átt að minni plastnotkun,�?? sagði Erla að lokum.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.