65 störf verða kynnt á starfa-kynningu í �?ekkingarsetrinu á morgun
SAMSUNG CSC
SAMSUNG CSC
Haldin verður Starfakynning í �?ekkingarsetri Vestmannaeyja í næstu viku. �?ar munu starfsmenn fyrirtækja og stofnana kynna sín störf og þá menntun sem þeir hafa. Flestir þátttakendur eru frá Vestmannaeyjum, en einnig munu nokkrir koma af meginlandi Suðurlands. Markmiðið með kynningunni er að auka þekkingu ungmenna og almennings á menntuðum störfum í heimabyggð, ásamt því að efla sambandið milli skóla og atvinnulífs. �?etta mun verða í annað skiptið sem kynningin er haldin og hefur Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja leitt verkefnið frá upphafi. Í þetta sinn fékk Viska styrk frá SASS sem eitt af áhersluverkefnum á Suðurlandi 2018. Ráðin var Sigríður Diljá Magnúsdóttur sem hefur tekið að sér verkefnastjórn og skipulagningu kynningarinnar.
Anna Rós Hallgrímsdóttir deildarstjóri eldra stigs GRV og Sólrún Bergþórsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Visku eiga hugmyndina af starfakynningunni og hafa unnið ötullega að henni frá upphafi.
�??�?g sá starfakynningu í líkindum við þetta í Reykjanesbæ fyrir nokkrum árum og fannst mjög spennandi. Fór strax að spá í hvort við gætum ekki gert eitthvað svipað. Fengið skólana og foreldrafélögin, sem samstarfsvettvang okkar í skólastarfinu til að koma að þessu með okkur,�?? sagði Anna Rós. �??Við gerðum þetta í rauninni af hugsjón, okkur fannst þetta vera spennandi verkefni og góð hugmynd,�?? sagði Sólrún.
Mörg fjölbreytt menntuð störf í Eyjum
Fólk sér tækifæri í Starfakynningunni til að ná til unga fólksins og fá þau til að skoða þau fjölmörgu og fjölbreyttu störf sem standa til boða í Vestmannaeyjum. �?að verða 65 störf kynnt á níu starfssviðum. �?ær segja að áherslan sé að kynna störf í Eyjum sem krefjast menntunar af einhverju tagi. �??Margir sem stefna á háskólanám hafa ekki gert sér grein fyrir þeim tækifærum sem er að finna í Vestmannaeyjum. Með þessari kynningu afsannast það orðspor að mikil fábreytni sé í störfum hér, sagði Sólrún.
Opið fyrir alla
Kynningin er eins og áður segir í nýju húsnæði �?ekkingarseturs Vestmannaeyja (gömlu Fiskiðjunni) og verður húsnæðið undirlagt í kynningarbásum, tækjum og tólum sem tengjast því. Níundi og tíundi bekkur mun fara í skipulagðar ferðir á Starfakynninguna ásamt framhaldsskólanemum en svo er þetta opið almenning líka. �??�?etta gerir nemendur jákvæðari gagnvart atvinnulífinu og við finnum að það var gagnkvæmt. Allir koma að þessu með jákvæðum huga og starfakynningin gerir líka meira, hún tengir fyrirtækin og stofnanirnar saman á nýjan hátt,�?? sögðu Sólrún og Anna Rós að endingu.

Nýjustu fréttir

Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.