Vörulína frá ORA sú besta á sjávarútvegssýningunni Brussel
Iceland´s Finest vörulínan frá ORA var valin vörulína ársins á sjávarútvegssýningunni í Brussel sem fram fer í þessari viku. Vörulínan inniheldur vörurnar Creamy Masago Bites, Crunchy Caviar Bites og Rich Langoustine Soup. Tilkynnt var um vinningshafa við hátíðlega athöfn í sýningarhöllinni í Brussel. Eyjapeyinn Jóhannes Egilsson er útflutningsstjóri hjá ORA og tók á móti verðlaununum.
Árlega stendur sjávarútvegssýningin í Brussel fyrir vali á bestu nýju vörum ársins. Allar vörurnar voru sérstaklega prófaðar og metnar af fagmönnum og innkaupafólki úr smásölu og stóreldhúsageiranum auk þess sem sérfræðingar í nýjum matvörum lögðu mat sitt á þær. �??�?etta er mikil viðurkenning fyrir okkur hjá ORA en við erum að keppa mörg af stærstu fyrirtækjum heims með sjávarafurðir um athygli á vörunýjungum og við stöndum skrefinu framar en þau. Í mínum huga enduspeglar þessi viðurkenning kraft, þor og metnað hjá eigendum ÍSAM/ORA á að auka verðmæti íslenskra sjávarafurða og taka næsta skref í þróun og markaðssetningu á okkar frábæru afurðum,�?? segir Jóhannes Egilsson útflutningsstjóri hjá ORA í samtali við Vísir.is.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá ORA er Iceland´s Finest vörulínan forréttir sem byggja eingöngu á íslensku hágæða hráefni og gerir fólki kleift að útbúa bragðgóða og girnilega sjávarforrétti með afar einföldum og fljótlegum hætti. �??Á undanförnum tveimur árum höfum við lagt mikla vinnu í vöruþróun og vörumerkjauppbyggingu sem hefur skilað okkur frábærri vöruhugmynd sem byggir á hágæða vörum unnum úr íslenskum sjávarafurðum.�??

Nýjustu fréttir

Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.