Mynd að komast á nýjan Herjólf
Smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju gengur samkvæmt áætlun. Komin er mynd á nýju ferjuna enda skrokkurinn nú tilbúinn og allt útlit fyrir að ferjan verði afhent Vegagerðinni þann 22. september líkt og stefnt hefur verið að.
Skrokkurinn er tilbúinn en hurðarnar er verið að smíða. Innanfrágangur er hafinn rétt eins og málun skrokksins. �?ótt skrokkurinn sé nú allur samsoðinn vantar enn stefnishlerann og skuthurðina auk glugga og hurða. Unnið er að frágangi lagna og rýma innan skips. Megnið að búnaðinum er komið um borð, vélar, hluti rafhlaða, bógskrúfur o.s.frv. �?að vantar þó enn viðbótar rafhlöðurnar og rafbúnaðinn til að taka við straumi frá landi, eftir að ákveðið var að ferjan myndi sigla alfarið á rafmagni milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Um borð verður mótor sem framleiðir rafmagn til að knýja ferjuna áfram á lengri leiðum svo sem í �?orlákshöfn en við allar venjulegar aðstæður verður siglt á rafmagni. Hleðslustöðvar verða í landi til að framleiða rafmagn. Til að þetta yrði gerlegt þurfti að fjölga rafhlöðum um borð.
Unnið er að smíðinni í pólsku skipasmíðastöðinni CRIST C.A. í Gdansk í Póllandi.

Nýjustu fréttir

Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.