Skýr valkostur
Nú eru rúmar fjórar vikur til kosninga. Frá því að listi Eyjalistans var birtur hafa móttökurnar verið vonum framar. Á listanum er töluverð endurnýjun frá því í síðustu kosningum og gaman er að sjá hve mikið af ungu fólki var nú til í að gefa kost á sér til að vinna að góðum málum fyrir bæjarfélagið. Sjálfur er ég stoltur af því að fá að leiða þennan hóp og hlakka kosninganna.
Málefnavinna Eyjalistans er komin á fullt skrið. Við höfum fengið með okkur fólk sem hefur mismunandi reynslu úr samfélaginu og vill taka þátt í því að gera góðan bæ enn betri. Líflegar umræður hafa skapast, meðal annars um það hvernig við getum bætt gæði grunn- og leikskóla, hvernig hægt sé að festa í sessi virkt íbúalýðræði, hvernig auka megi tiltrú almennings á stjórnkerfinu í bænum og hvernig við getum tryggt fjölbreytt og blómlegt atvinnulíf í bænum.
Ljóst er að tryggar samgöngur eru eitt brýnasta hagsmunamál íbúa í Vestmannaeyjum á næstu árum. Á fundi um ferðaþjónustu á Íslandi í Eldheimum á dögunum kom fram bjartsýni ferðaþjónustuaðila til framtíðar. Í mínum huga snúast samgöngumálin ekki um það hvaða aðili sé bestur til þess fallinn að reka Herjólf heldur að ferjan sé rekin með hagsmuni íbúa í Vestmannaeyjum að leiðarljósi. Umræðan á því ekki að snúast um hvern, heldur hvernig. Við þurfum að tryggja öflugar samgöngur sem henta íbúum og atvinnulífi þannig að lífið í bænum geti blómstrað. �?etta þarf að vera leiðarstefið í umræðunni um samgöngumál en ekki hagsmunir fárra aðila.
Kosningabaráttan sem nú fer í hönd mun bera keim af innanflokksátökum í Sjálfstæðisflokknum sem kristallast í því að nú eru boðnir fram tveir listar sjálfstæðismanna. Jafnvel þó svo að fyrirheit séu gefin um að framboð teygi sig frá hægri til vinstri þarf ekki að fara djúpt ofan í atburði síðustu vikna til að sjá hvernig í pottinn er búið. Valkosturinn er því skýr, áframhaldandi valdatíð sjálfstæðismanna eða nýjar áherslur þar sem raddir allra bæjarbúa fá að njóta sín.

Nýjustu fréttir

Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.