Segir starfsmann HSÍ hafa vegið að mannorði Magnúsar
Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV í handbolta, er allt annað en sáttur með þá ákvörðun aganefndar HSÍ að bæta við eins leiks banni við það bann sem Magnús Stefánsson, leikmaður liðsins, hlaut með úrskurði aganefndar þann 25. apríl sl. en Arnar tjáði sig um málið í langri færslu á facebook fyrr í dag. Magnús er þar með úr­sk­urðaður í tveggja leikja bann fyr­ir rauða spjaldið sem hann fékk á móti Hauk­um í fyrsta leik liðanna í undanúr­slit­um Íslands­móts karla í hand­bolta.
Tekur Arnar m.a. fram í færslunni að Magnús sé eitt mesta ljúfmenni sem hann þekkir og að starfsmaður HSÍ hafi vegið að mannorði hans í beinni útsendingu og komist upp með það:
“�?að er því með ólíkindum að þegar Maggi Stef fær sitt fyrsta beina rauða spjald skuli HSÍ dæma hann í tveggja leikja bann og það að mér vitandi, fyrstan af öllum í Olís deild karla þetta árið fyrir brot. �?ið vitið Olísdeildinni þar sem spilaður er handbolti og einn sló annan í punginn um daginn og fékk einn leik í bann! Deildin þar sem við höfum fengið að sjá þau nokkur rauðu spjöldin eftir að menn hafi farið í andlitið á andstæðingum sínum og í fæstu tilfellum fengið bann.
Sennilega spilar inn í að einn starfsmaður HSÍ tók sig til um daginn og hjó illa að mannorði Magga í beinni útsendingu sjónvarps. Sagði Magga hafa stundað það í mörg ár að slasa leikmenn viljandi til að vinna leiki. �?arna talaði starsmaður HSí gegn betri vitund og komst upp með. Hann fékk jú ámnningu frá sambandinu en orðin fengu að standa og enginn hefur beðist afsökunar eða reynt að bera þenna róg til baka. �?ið munið, Maggi er búinn að spila leikinn lengur en flestir og það án þess að fá beint rautt spjald.”

Nýjustu fréttir

Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.