Mikill árangur í samgöngumálum
Í dag var stórt skref stigið í samgöngumálum Eyjamanna. Skrefi sem vart verður saman jafnað ef frá er talin tilkoma Landeyjahafnar. Herjólfur verður nú loks rekinn af heimamönnum, fyrir heimamenn. Með því að hafa þor og dug til að axla ábyrgð á þessum mikilvæga rekstri færist Herjólfur til muna nær því áratuga markmiði Eyjamanna að hann sé séður sem þjóðvegur og þjónusta og gjaldskrá taki fyrst og fremst mið af því.
Fyrr í dag samþykkti bæjarstjórn Vestmannaeyja samning milli Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar um rekstur Herjólfs. Undir forystu Sjálfstæðismanna samþykkti bæjarstjórn samninginn og mun þar með taka við rekstri Herjólfs eftir að nýtt skip hefur þjónustu eigi síðar en 8. október 2018.
Framfaraskrefið er sennileg stærra en nokkurn Eyjamann þorði að dreyma um.
Samningurinn sem er til tveggja ára felur í sér:
· Rekstur Herjólfs verður í sjálfstæðu félagi í eigu Vestmannaeyjabæjar sem þýðir að hann verður algerlega og með öllu óháður öðrum rekstri sveitarfélagsins.
· Ferðum mun á samningstímanum fjölga um að lágmarki hátt í 600 á ári. Gert er ráð fyrir áætlunarferðum frá 06.30 á daginn fram til miðnættis.
· Skipið sigli alla daga ársins, þar með talið á stórhátíðum.
· Afsláttur fyrir heimamenn fer úr 40% í 50% og verður veittur án þess að slíkt reyni á inneignakerfi líkt og nú er. Gjaldskrá verður að öðru leyti nánast óbreytt frá því sem nú er. �?ar með talið að sama gjaldskrá gildi í Landeyjahöfn og �?orlákshöfn.
· Störfum um borð mun fjölga nokkuð frá því sem nú er enda gert ráð fyrir að skipið verði mun meira í notkun. Gert er ráð fyrir þremur áhöfnum og tveimur vöktum hvern dag.
· Herjólfur verður til staðar sem varaskip og nýttur ef þörf verður á.
· Bókunarkerfi verður tekið til algerrar endurskoðunar. �?ar með talið er gert ráð fyrir að notendur geti bókað ferðir, greitt þær, breytt bókunum og sinnt öllum öðrum þáttum í gegnum símaforrit og/eða tölvu.
· Upplýsingagjöf til notenda verður stóraukin og höfuðáhersla lögð á þjónustu við heimamenn og gesti þeirra.
· Verði hagnaður af rekstri hins opinbera hlutafélags verður honum varið til að auka þjónustu og/eða lækka gjaldskrá.
Við fögnum þessu risa skrefi í samgöngumálum Vestmannaeyinga, sem vart verður saman jafnað. Við vitum sem er að árangur sem þessi verður ekki til úr engu. Á bak við hann er mikil vinna og ómælt þor. Að okkar mati er öruggt að án forystu Sjálfstæðisflokksins og einlægs og góðs samstarfs við minnihluta E-lista hefði þessi árangur ekki náðst
Við undirrituð erum stolt af því að hafa nú hlotið traust Sjálfstæðismanna til að halda áfram þeim verkum sem þegar hafa verið mótuð og bæta um betur. Gera lífið betra í Vestmannaeyjum. Til þess þurfum við þó stuðning bæjarbúa í komandi kosningum.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Trausti Hjaltason

Nýjustu fréttir

Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.