Eyjalistin mun áfram standa vörð
Nú í lok kjörtímabils þeirrar bæjarstjórnar sem nú situr er fjölmargt sem hægt er að rifja upp þar sem bæði minni- og meiri hluti bæjarstjórnar hefur verið samstiga um afgreiðslu mala og þess vegna hafa fjölmörg þeirra náð fram að ganga, mál sem snerta framtíð Vestmannaeyja.
Meirihluti núverandi bæjarstjórnar gleymir því oft að minnihlutinn á alls ekki síður mikinn og stundum mestan þátt í því að staða Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans er að mestu leyti góð þótt meirihlutinn þakki sér árangurinn án þess að hika. Rétt er og að taka fram að peningar þeir sem fengust við sameiningu Bæjarveitna og Hitaveitu Suðurnesja á sínum tíma hafa lagt grunninn að góðri fjárhagsstöðu og skiptu vissulega sköpum um fjármálastöðuna en ekki einungis einhver fjármálakæska meirihluta bæjarstjórnar. �?annig er það nú einfaldlega.
Vestmannaeyjahöfn sem er í raun hryggjarstykkið í atvinnulífi Vestmannaeyja stendur vel um þessar mundir. �?ar kemur enn til að samstaða hefur ríkt um fjölmörg mikilvæg mál og fjölmörg mál hafa komið þar fram af frumkvæði minnihlutans. Leggja 90 milljónir til verkefna hafnarinnar á þessu ári. Einnig hefur verið gerð áætlun um höfnina fram til ársins 2021. �?etta tel ég afar mikilvægt vegna þess hve mikilvæg höfnin, starfsemi hennar og aðstaða í henni er ótrúlega stór þáttur í samfélaginu.
Nú er ný sorpeyðingarstöð í umhverfismati og ef útkoman úr því verður hagstæð er ekki eftir neinu að bíða með að reisa fullkomna brennslu sem fullnægir öllum skilyrðum og setja þannig sorpmálin í góðan og eðlilegan farveg. Stöðin gæti orðið fyrirmynd fyrir önnur sveitarfélög. Einnig kunna að skapast þar möguleikar á að stöðin geti framleitt heitt vatn inn á hitaveitukerfið.
Að lokum við ég leyfa mér að vona að samningurinn um yfirtöku Vestmannaeyjabæjar á rekstri Herjólfs leiði til mjög bættra samgangna. �?að mál var unnið af bæjarstjórn í heild sinni, ekki bara af meirihlutanum eins og nú er verið að gefa í skyn.
Kosningar eru á næsta leiti. E listinn er þar vænlegur kostur. Hann mun sannarlega standa vörð um hagsmuni Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.