Fagnaðarfundur við heimkomu Breka
Gestkvæmt var um borð í Breka VE í Vestmannahöfn og margfaldur fagnaðarfundur. Fjölskyldur áhafnarinnar, Vinnslustöðvarfólk og fjöldi annarra Eyjamanna fögnuðu í gær (6. maí) heimkomu áhafnar og glæsilegs skips eftir 45 daga siglingu frá Kína.
Breki kom á heimaslóðir við Eyjar í fyrrakvöld, lónaði þar í nótt, var tollafgreiddur í morgunsárið og sigldi svo til hafnar á tólfta tímanum í dag. Skipsflautan gall aftur og aftur og Eyjamenn svöruðu með skipsflautum í höfninni og bílflautum á hafnarbakkanum.
Fjöldi fólks beið komu skipsins, stemningin var mikil og áþreifanleg og spenningur eftir því að fara um borð og skoða sig um frá brú niður í vélarrúm. Veitingar voru á millidekkinu.
Magnús Ríkarðsson skipstjóri stóð sig með stakri prýði í gestgjafahlutverki í brúnni. Hann var óþreytandi að kynna og útskýra hvort sem áttu í hlut krakkar sem litu á myndir á tölvuskjám sem tölvuleiki eða þrautreyndir skipstjórnendur sem vildu kafa djúpt í tækni og möguleika tækja og tóla.
Skipstjórinn fór fögrum orðum um skipið. �?að fór vel í sjó og áhöfnin var svo heppinn að lenda í brælu á síðustu sólarhringum heimferðar. Á það reyndi líka við slíkar aðstæður.
�?llu fleiri en Eyjamenn fylgdust spenntir með Breka á 11.700 sjómílna heimsiglingu frá Kína. Skrif á Fésbók og á VSV-vefnum rötuðu í helstu fjölmiðla landsins, bæði útvarpsstöðvar og dagblöð. Breki hefur með öðrum orðum verið umtalaðasta skip íslenska flotans undanfarnar vikur en sigldi samt í fyrsta sinn inn í íslenska lögsögu síðastliðið föstdagskvöld!
Gera má ráð fyrir að Breki VE í lok júní. Fyrst þarf að koma fyrir búnaði á vinnsludekki, tækjum sem smíðuð eru annars vegar hjá Vélaverkstæðinu �?ór í Vestmannaeyjum og hins vegar 3X stáli á Ísafirði. www.vsv.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Karlalið ÍBV tapaði gegn Víkingum
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar síðdegis
Þórunn Pálsdóttir er Eyjamaður mánaðarins
MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.