Karlakórinn heldur fría vortónleika
Karlakór Vestmannaeyjar, Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2018, heldur árlega vortónleika sína í stóra sal Hvítasunnukirkjunnar, Gömlu höllinni nk. fimmtudag 17. maí kl. 21:30 eða strax að loknum leik ÍBV og FH í úrslitakeppninni handbolta. Frítt er inn og því engum að vanbúnaði að láta sjá sig. Lofað er léttri en kraftmikilli stemningu en kórinn mun flytja lög úr hinum og þessum áttum og senum. Gömlu og góðu Eyjalögin verða á sínum stað ásamt nýrri Eyjalögum, lög úr íslensku rappsenunni fá einnig að heyrast sem og klassísk íslensk dægurlög í bland við kraftmikil karlakóralög. Einsöngvarar eru þeir Sæþór Vídó, Elías Árni Jónsson, Gísli Stefánsson og �?órhallur Barðason. Undirleikur er í höndum Kitty Kovács og kórstjóri er �?órhallur Barðason. Allir velkomnir.

Nýjustu fréttir

Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.