Hjartað slær á Hraunbúðum
Aldraðir í Vestmannaeyjum hafa svo sannarlega átt stóran þátt í að byggja upp samfélagið sem við búum í í dag og því er mikilvægt að þau fái þá þjónustu og aðstöðu sem þau eiga skilið. Á síðasta kjörtímabili hefur verið lögð mikil vinna í að gera aðstæður og þjónustu við Hraunbúðir sem bestar. Til að mynda:
* er búið að byggja nýja álmu við Hraunbúðir fyrir einstaklinga með sértækar þarfir sem bíður uppá betri vinnuaðstæður fyrir starfsfólk og bætta aðstöðu fyrir heimilisfólk
* hefur þjónusta verið aukin á Hraunbúðum með stækkun á aðstöðu til dagdvalar, endurnýjaðri líkamsræktarstöðu og nýju aðstandendaherbergi
* er verið að byggja þjónustuíbúðir við Eyjahraun
* er búið að fjölga stöðugildum um fjögur
* hefur iðjuþjálfi tekið til starfa við Hraunbúðir
Sjálfstæðisflokkurinn hefur um árabil haft það eitt af sínum helstu markmiðum að gera vel við eldri borgara í okkar samfélagi og er stefna að halda því ótrauð áfram.
Við sem heilbrigðisstarfsmenn vinnum mikið og náið með öldruðum. Okkar reynsla af því er sú að aldraðir hafa frá svo mörgu að segja og hafa kennt okkur margt á lífið og tilveruna og af þeim eigum við að læra. Aldraðir eru jafnframt góðir hlustendur og eiga alltaf góð ráð sem við ættum að taka okkur til fyrirmyndar og nýta til þessa að byggja upp okkar samfélag á góðan og jákvæðan hátt.
Andrea Guðjóns Jónasdóttir, sjúkraliði skipar 9. sæti lista Sjálfstæðisflokkins og Ragnheiður Perla Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður Eyverja.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.