�?rslitaeinvígið galopið eftir tap Eyjamanna
ÍBV og FH mættust öðru sinnis í úrslitaeinvígi liðanna í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Hafnafirði í kvöld. Heimamenn í FH höfðu betur 28:25 og jafna því einvígið í 1:1.
Jafnræði var með liðunum í kvöld en ÍBV var þó alltaf í því hlutverki að elta en í hálfleik leiddi FH með tveimur mörkum, staðan 15:13.
ÍBV byrjaði síðari hálfleikinn vel og náði forystunni þegar átta mínútur voru liðnar. FH-ingar gáfu þó ekkert eftir í kjölfarið og var leikurinn hnífjafn næstu mínúturnar. Eftir um 45 mínútna leik tók hins vegar við slæmur kafli hjá Eyjamönnum, brottvísanir og tapaðir boltar. Liðsmenn FH gengu á lagið og náðu fjögurra marka forystu þegar um tíu mínútur lifðu leiks. Eftir það var róðurinn þungur fyrir Eyjamenn sem þurftu að lokum að sætta sig við þriggja marka tap.
Theodór Sigurbjörnsson var markahæstur í liði ÍBV með sex mörk. Aron Rafn Eðvarðsson varði 11 skot í markinu.
Næsti leikur liðanna verður í Vestmannaeyjum fimmtudagskvöld.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.