Samþykkt einróma að stofna opinbert hlutafélag
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í gær að Vestmannaeyjabær stofni opinbert hlutafélag, þ.e. Herjólf ohf., í því skyni að félagið taki að fullu að sér ábyrgð og rekstur á nýrri farþegaferju (Herjólfur) sem mun alfarið taka að sér farþegaflutninga milli lands og Eyja þegar hún kemur til landsins á haustmánuðum 2018. Samþykkt stofnunar félagsins er í samræmi við þegar samþykktan samning Vestmanneyjabæjar og ríkisins um yfirtöku bæjarins á farþega- og vöruflutningum á sjóleiðinni milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar/�?orlákshafnar.
Enn fremur samþykkir bæjarstjórn að leggja félaginu til kr. 150.000.000 sem stofnfé í samræmi við fyrirliggjandi drög að stofngögnum, sem liggja frammi á fundinum, segir í bókun. Tilgreint hlutafé er hluti af því rekstrarmódeli sem lagt hefur verið til grundvallar samningsins og gerir það ráð fyrir að við lok samningsins verði eigið fé félagsins rúmlega 175.000.000 og stofnfé skili sér til því til baka komi til slita þess við samningslok.
Stjórn félagsins
Með samþykkt tillögu þessarar er bæjarstjóra enn fremur veitt umboð til að ganga frá stofnun félagsins í samræmi við samþykkt þessa, auk fyrirliggjandi draga að stofngögnum, segir í bókun. �?á samþykkir bæjarstjórn enn fremur tilnefningar um að aðalmenn í stjórn félagsins við stofnun þess verði Arndís Bára Ingimarsdóttir, Grímur Gíslason, Kristín Jóhannsdóttir, Lúðvík Bergvinsson og Páll Guðmundsson. Í varastjórn taki sæti Birna Vídó �?órsdóttir og �?löf Aðalheiður Elíasdóttir.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.