ÍBV bætir við sig sóknarmanni frá Wales
Karlalið ÍBV í knattspyrnu nældi sér í hinn 28 ára gamla sóknarmann Jonathan Franks áður en félagsskiptaglugganum lokaði á miðnætti í gær en frá þessu greinir fótbolti.net.
Franks er Walesverji en hann ólst upp hjá Middlesbrough og lék einn leik með liðinu þegar það féll úr ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2008/2009. Hann kom þá inn á sem varamaður í leik gegn West Ham.
Tímabilið eftir skoraði Jonathan þrjú mörk í 21 leik í Championship deildinni með Middlesbrough.
Tímabilið 2011/2012 spilaði Jonathan í C-deildinni með Yeovil og síðan í C og D-deild með Hartlepool.
Franks spilaði með Ross County í skosku úrvalsdeildinni frá 2015 til 2017 en í vetur lék hann með Hartlepool United og Wrexham í ensku utandeildinni.

Nýjustu fréttir

Þórunn Pálsdóttir er Eyjamaður mánaðarins
MATEY: Vilhjálmur Sigurðarson með fágaðan og frumlegan seðil á Næs
Leita að fyrsta sigrinum gegn sterku liði Víkinga
Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.