�?að er bara einn Sjálfstæðisflokkur
Vestmannaeyjabær er eitt best rekna sveitarfélag á landinu öllu. Undir stjórn Sjálfstæðisflokksins hefur bæjarfélagið blómstrað. Krafturinn, þorið og þrekið sem einkennir störf meirihluta Sjálfstæðismanna er þannig að eftir því er tekið.
�?g er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og styð framboð félaga minna í Eyjum afar eindregið. Til að taka af allan vafa þá er um leið ljóst að ég lít eðlilega á önnur framboð sem mótframboð við minn flokk.
�?að er bara einn Sjálfstæðisflokkur og listabókstafur hans er D. Í framboði fyrir okkur Sjálfstæðismenn nú er einvala blanda af nýju og reynslumiklu fólki úr atvinnulífinu og þeim sem reyndari eru. �?g er sérstaklega stoltur af því að enn á ný skulum við Sjálfstæðismenn treysta ungu fólki til ábyrgðastarfa. Í fyrsta sæti situr ung kona, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, sem ég er svo heppinn að eiga að vinkonu. Betri manneskju og aðila í forsæti lista er ekki hægt að finna.
�?g hvet Eyjamenn til að kynna sér þann ótrúlega árangur sem okkar fólk hefur náð á seinustu árum. �?að er sama hvort litið er til þjónustu sveitarfélagsins eða baráttu fyrir þjónustu ríkisins. Árangurinn Sjálfstæðismanna er víðtækur og langt frá því að vera sjálfsagður.
Vilhjálmur Árnason
�?ingmaður Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.