Sverrir Gunnlaugsson er sjómaður ársins 2018
Síðastliðinn tvö ár hefur brugghúsið The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum valið einn sjómann úr eyjaflotanum og tilnefnd hann sem sjómann ársins. 2016 var það Ragnar �?ór Jóhannsson eða Raggi Togari eins og hann er jafnan kallaður og 2017 var það Ríkharður Zoëga Stefánsson sem valdur voru sem sjómenn ársins. Í framhaldinu hafa strákarnir í The Brothers Brewery bruggað bjór í samstarfi við sjómenn ársins og selt á valda veitingastaði.
Um milljón króna safnast til góðgerðarmála
Flaska af sjómannabjórnum ár hvert farið í uppboði á sjómannaballi Sjómannadagsráðs og hefur ágóði uppboðsins runnið til Krabbavarna í Vestmannaeyjum. Samtals hafa bjórarnir Togarinn og Zoëga safnað um milljón sem runnið hefur óskipt til Krabbavarna.
Sverrir Gunnlaugsson skipstjóri er sjómaður ársins 2018
Í ár er sjómaður ársins Sverrir Gunnlaugsson skipstjóri en Sverrir hefur ákveðið að setjast í helgan stein og mun hann hætta störfum á komandi mánuðum. Á sínum sjómannsferli hefur Sverrir m.a. verið á Vestmannaey VE, Bergey VE, Erlingi KE, Jóni Vídalín VE, Gullbergi VE, Sindra VE, Berg VE, �?feigi VE, Dala Rafni VE, Huginn VE og Hamrabergi VE. Sverrir hefur verið gríðarlega fengsæll skipstjóri og stýrimaður og er það mál manna sem hafa unnið með honum til sjós að þægilegt og gott hafi verið að vinna með Sverri.
Sjómannabjórinn 2018 heitir Sverrir og er 8% stout. Sverrir mun fara í sölu á valda veitingastaði og bari einhverjum dögum fyrir sjómannadagshelgina.

Nýjustu fréttir

Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært
Veðrið gengur niður
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.