Eyjamenn Íslandsmeistarar
Karlalið ÍBV í handbolta tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn fyrr í dag þegar liðið lagði FH að velli með átta marka mun, lokatölur 20:28.
Eyjamenn voru án Andra Heimis Friðrikssonar sem var dæmdur í eins leiks bann fyrir brot á Gísla �?orgeiri Kristjánssyni í leik liðanna í Eyjum á fimmtudaginn. �?að kom ekki að sök því ÍBV tók frumkvæðið snemma leiks og lét forystuna aldrei af hendi.
Með sigrinum tryggði ÍBV sér þriðja titilinn á tímabilinu en eins og flestir vita eru Eyjamenn einnig ríkjandi bikar- og deildarmeistarar.
Aron Rafn Eðvarðsson átti enn og aftur stórleik í marki Eyjamanna en hann varði 15 skot. Róbert Aron Hostert og Sigurbergur Sveinsson voru atkvæðamestir í markaskorun Eyjamann í dag með fimm mörk hvor.
Fjöldi fólks kom saman á Háaloftinu í dag til að fylgjast með leiknum, �?skar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, lét sig ekki vanta og tók meðfylgjandi myndir.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.