Léleg eftiráskýring
Góður vinur minn, gítarbróðir og kórfélagi Leó Snær er með grein í bæjarmiðlunum í dag þar sem hann með rökum reynir að réttlæta ákvörðun Írisar Róbertsdóttur um að sitja ekki sem bæjarfulltrúi verði hún bæjarstóri. Greinin er vel skrifuð en engu að síður rökleysa.
Í grein sinni segir Leó að ekkert sé því til fyrirstöðu að kjörinn fulltrúi víki til hliðar vegna anna í annari vinnu. Vitnar hann í 30.gr sveitarstjórnarlaga þar sem segir ,,Telji sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, svo sem vegna veikinda eða annarrar vinnu, getur sveitarstjórn létt af honum störfum eða veitt honum lausn úr sveitarstjórn, að hans ósk, um tiltekinn fyrir fram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.�??�??
Er þessi klausa talin sem rök fyrir því að fulltrúi geti horfið frá skyldum sínum sem á um er kveðið í sama lagabálki en þar segir í 22.gr ,, Sveitarstjórnarmanni ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli, sbr. 31. gr.�?? Og í 23.gr. ,, Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins.�??
Rök H-listans eru því að álagið á Írisi af því að verða bæjarstjóri verði svo mikið að hún -ólíkt bæjarstjórum um allt land- þurfi að hætta sem bæjarfulltrúi. Annaðhvort snýst þetta þá um viðhorfið H-listans til starfsgetu Írisar eða viðhorf þeirra til starfa almennt. Vart er viðhorfið ekki að Íris þoli minna álag en aðrir.
�?að má því velta fyrir sér, hvaða störf það eru sem eru svo léttvæg við hlið starfs bæjarstjóra að hægt sé að sitja sem bæjarfulltrúi með fram þeim? Væntanlega mun sá aðili sem sest í stól fulltrúa í stað Írisar gegna mun veigaminna starfi en starfi bæjarstjóra, sem að áliti H-listans skapar óhæfilegt álag á viðkomandi aðila. �?á má einnig velta fyrir sér því álagi sem Elliði hefur mátt þola þessi 12 ár, sem eru þá samkvæmt starfagreiningu H-listans óhæfilegt álag og það í 12 ár.
�?að væri þá fróðlegt að fá útlistun frá H-listanum á því hvaða störf séu það léttvæg að þau skapi ekki óhæfilegt álag á bæjarfulltrúa þannig að hægt sé að velja á lista framboða fólk í léttvægari störfum sem geta þá sinnt störfum bæjarfulltrúa.
Fólkið sem situr þá í sætunum fyrir neðan Írisi hlýtur þá, miðað við röksemdarfærsluna, að sinna mun léttvægari störfum en starfi bæjarstjóra að mati starfagreiningardeildar H-listans.
Mér finnst með þessu eru liðsmenn H-listans að gera ansi lítið úr fólki sem sinnir öðrum störfum en starfi bæjarstjóra, sem vissulega er mikilvægt og stórt starf, en þó alls ekki þannig að það skapi óhæfilegt álag umfram önnur störf.
Líklegast er þó hér um að ræða lélega eftiráskýringu frá hendi H-listans sem reynir hér að fara á svig við lýðræðið.
Jarl Sigurgeirsson

Nýjustu fréttir

Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært
Veðrið gengur niður
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.