Er Vestmannaeyjabær vel rekið sveitarfélag?
Okkur er reglulega sagt að Vestmannaeyjabær sé vel rekið sveitarfélag. En hvað þýðir vel rekið sveitarfélag? Er það sveitarfélagið sem á mestu peningana inn á banka, skuldar minnst, á mest eða veitir bestu þjónustuna? �?að er sjálfsagt ekkert eitt rétt svar við því frekar en öðru, þetta þarf væntanlega að haldast í hendur og vera í jafnvægi, en getur verið að hægt sé að gera hlutina betur?
Ef skoðað er í Lykiltölur úr rekstri sveitarfélaga árið 2016 sem Samband Íslenskra Sveitarfélag gefur út þá sést að Vestmannaeyjabær setur 30% af sínu skatttekjum í grunnskólann sinn. Til að átta sig á því hvort að það sé mikið eða lítið skoða ég til samanburðar Kópavog 34%, Seltjarnanes 31%, Garðabæ 34%, Grindavík 41%, Akranes 30%, Ísafjörð 39%, Sveitarfélagið Skagafjörð 45%, Fjarðabyggð 44% og Árborg 40%.
Samkvæmt þjónustukönnun Gallup árið 2017 þá skorar Vestmannaeyjabær 4,0 í ánægju á skalanum 0-5 á meðan Garðabær skorar 4,2, Seltjarnanes 4,2 og Akranes 4,0. Vestmannaeyjar eru í 4. sæti af 12 stærstu sveitarfélögum landsins í ánægju með þjónustu leikskóla.
Ef leikskólarnir eru skoðaðir sjást svipaðar tölur, Vestmannaeyjabær setur 14% af skatttekjum sínum í leikskólana á meðan að Kópavogur setur 19%, Seltjarnanes 16%, Garðabæ 19%, Grindavík 17%, Akranes 16%, Ísafjörð 20%, Skagafjörður 17%, Fjarðabyggð 21% og Árborg 19%.
Samkvæmt þjónustukönnun Gallup árið 2017 þá skorar Vestmannaeyjabær 3,9 í ánægju á skalanum 0-5 á meðan Garðabær skora 4,3 og Seltjarnanes 4,2. Vestmannaeyjar eru í 8. sæti af 12 stærstu sveitarfélögum landsins í ánægju með þjónustu leikskóla.
Samtals fá fræðslu- og uppeldismál 44% af skatttekjum Vestmannaeyjabæjar á meðan Garðabær setur 53%, Seltjarnanes 54%, Kópavogur 58%, Fjarðabyggð 54%, Akranes 47%, Grindavík 55%, Ísafjörður 59%, Sveitafélagið Skagafjörður 63% og Árborg 60%.
�?að er ákvörðun að veita góða þjónustu. �?að er hægt að gera betur.
Guðmundur Ásgeirsson
4.sæti – Fyrir Heimaey

Nýjustu fréttir

Gagnasöfnun vegna fýsileikamats Eyjaganga lokið
Opið fræðsluerindi um heilabilun og samskipti
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt umfram áætlun
Ný stjórn SASS stillir saman strengi
Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Evrópuhreyfingin: 105.339 Íslendingar sögðu já
Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.