Sumarvertíðin hófst um mánaðamótin hjá Ísfélagi Vestmannaeyja á Þórshöfn og er búið að taka þar á móti um 1.500 tonnum af makríl, segri í frétt á mbl.is
Að sögn skipstjóra Heimaeyjar var nokkuð löng sigling á miðin suðaustur af landinu, eða um 12 tímar. Unnið er nú allan sólarhringinn í vinnslunni og vertíðarbragur kominn á bæinn. Ísfélagið hefur verið í töluverðum framkvæmdum í vinnslunni á Þórshöfn og mikil endurnýjun þar á búnaði til vinnslu uppsjávarfisks og með því er stuðlað að auknum gæðum framleiðslu og meiri sjálfvirkni í vinnslunni.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.