Þess var minnst 7. júlí sl. á opnu málþingi í Sagnheimum að 50 ár voru liðin frá því fyrsta vatnsleiðslan var lögð til Eyja. Í sömu viku var fylgdi sérstakt 18 bls. vatnsblað með Eyjafréttum. Í blaðinu var fjallað var undirbúning og framkvæmdir sem hófust sumarið 1966 með lagningu vatnsleiðslu frá vatnsinntaki úr bergvatnsá við bænum Syðstu Mörk til Landeyjasands og lauk með byggingu vatnstanks við Löngulág í Eyjum vorið 1972. Nýjar vatnsleiðslur voru lagðar 1971 og sú þriðja 2008.
Á málþinginu fjallaði Ívar Atlason tæknifræðingur hjá HS veitum um þessar gríðarlegu framkvæmdir, Hrönn Hannesdóttir húsmóðir sagði frá sinni upplifun að alast upp við vatnsleysi í Eyjum. Dofri Eysteinsson, verktaki eigandi Suðurverks ræddi um fyrsta verkefnið að grafa fyrir vatnsleiðslu í landi fyrir liðlega 50 árum og samstarfinu við Eyjamenn. Loks fór Gunnar Marmundsson , eftirlitsmaður Vatnsveitu í land yfir sitt hlutverk en hann lét af störfum fyrir tveimur árum eftir 48 ára starf við vatnsveituna. Í lokin var ljósmynd Sigurgeirs Jónassonar varpað á tjaldið , en búið er að þekkja yfir 300 manns á myndinni sem var tekin 20. júlí 1968 þegar vatnsleiðslan kom til Eyja. Kvikmynd NKT framleiðenda vatnsleiðslunnar sem var tekin 1968 var sýnd í lokin. Málþingið tókst vel og voru þátttakendur líklega 100 talsins. Áhugahópur um þennan merka atburð í sögu byggðar í Eyjum skipuðu Ívar Atlason, Stefán Ó. Jónasson, Kári Bjarnason og Arnar Sigurmundsson. Ómar Garðarsson annaðist ritstjórn fylgiblaðs Eyjafrétta fyrir hópinn, Vatn í 50 ár.
Hrönn Vilborg Hannesdóttir, alin upp í húsinu Hæli við Brekastíg,, síðar húsmóðir á Bakkastíg fram að gosi og loks á Stapavegi og þekkir tímanna tvenna hún heimilaði Eyjafréttum að birta það sem hún hafði fram að færa á málþinginu. Þetta er hennar frásögn.
Efni á þessari síðu er aðeins fyrir áskrifendur. Vinsamlegast skráðu þig inn til að lesa meira eða gerast áskrifandi.