Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær var tekið fyrir að nýju frestað erindi frá síðasta fundi skipulagsráðs. Þar óskar Júlíus Hallgrímsson eftir lóðum sunnan við Áshamar 1 þar sem fyrirhugað er að byggja tvö 6-íbúða raðhús.
Niðurstaða ráðsins
Ráðið tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við skipulagslýsingu í samræmi við 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Búið er að skipa starfshóp um framtíðarskipulag tjaldsvæða á Þjóðhátíð. Í honum eru Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Dóra Björk Gunnarsdóttir og Páll Scheving ásamt framkvæmdastjóra og skipulagsfulltrúa. Hópurinn hefur hafið störf.
Margrét Rós Ingólfsdóttir, fulltrúi minnihlutans, sagði málið vera fordæmisgefandi og ekki vera hlynnt þeim breytingum skipulagi sem óskað er eftir. Hún lagði því fram eftirfarandi bókun:
„Undirrituð var formaður Umhverfis- og skipulagsráðs á fundum nr. 281 og 284 (sem haldnir voru í vor sl.) þar sem umrætt mál var tekið fyrir og voru þá allir nefndarmenn D-lista og E-lista hlynntir því að halda sig við gildandi skipulag á svæðinu. Fékk fyrirspyrjandi þau svör að beiðnin samræmdist ekki því skipulagi sem í gildi er á svæðinu. Nú hefur meirihlutinn lýst því yfir að vera tilbúinn til þess að breyta skipulaginu til þess að verða að óskum fyrirspyrjanda. Slíkt getur ekki annað en verið fordæmisgefandi fyrir aðra sem hafa verið í sömu stöðu og fengið synjanir á grundvelli þeirra skipulaga sem eru í gildi hér í sveitarfélaginu. Þá finnst mér mikilvægt að hafa í huga að umrædd lóð er í raun eina fjölbýlishúsalóðin sem eftir er á skipulagi í Vestmannaeyjum. Undirrituð er því ekki hlynnt þeim breytingum á skipulagi sem óskað er eftir.“
Fulltrúar meirihlutan Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Stefán Óskar Jónasson og Jónatan Guðni Jónsson, lögðu einnig fram eftirfarandi bókun. „Við lýsum undrun yfir að fulltrúi D-lista vilji halda sig við eldra skipulag og hafa svæðið óbreytt í stað þess að leyfa byggingu raðhúsa.”
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.