Botnlið ÍBV tapaði gegn toppliði Hauka

ÍBV mætti Haukum í Hafnafirði í leik í 10. umferð Olís-deildar karla í gær.

Eyjamenn byrjuðu ágætlega og komust í 1-3 en þá tóku Haukar við sér og snéru leiknum við og eftir tíu mínutna leik var staðan orðin 7-3 Haukum í vil. Eyjamenn tóku þá aðeins við sér eftir að hafa verið undir 11-7 og jöfnuðu leikin 13-13 með þrjár mínútur eftir að fyrri hálfleik. Það dugði þó skammt og var staðan í hálfleik 16-14.

Í síðari hálfleik sáu Eyjamenn aldrei til sólar og markvörður hauka Grétar Ari Guðjónsson hreinlega lokaði markinu. Þrátt fyrir að fá nóg af færum voru þau illa nýtt því fór sem fór. Til að mynda skorar ÍBV aðeins úr tveimur vítaskotum af sjö í leiknum. Lokatölur 32-26 Haukum í vil.

Markahæstur í liði ÍBV var Kristján Örn Kristjánsson með sex mörk. Aðrir markaskorarar voru Fannar Þór Friðgeirsson (5), Dagur Arnarsson (4 / 2), Theodór Sigurbjörnsson (3), Hákon Daði Styrmisson (2), Kári Kristján Kristjánsson (2), Elliði Snær Viðarsson (1), Daníel Örn Griffin (1), Róbert Sigurðarson (1) og Sigurbergur Sveinsson (1).

Eftir leikin eru Eyjamenn áfram í 10. sæti með 6 stig, jafnir Gróttu sem á þó leik til góða og mætir Selfossi á morgun. Með sigri þar kemst Grótta upp fyrir meistarana sem detta þá niður í fallsæti.

Nýjustu fréttir

Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.