Árangurinn verður ekki gefinn eftir
31. janúar, 2019
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi.

Skipan mála hjá sýslumannsembættinu í Vestmanneyjum hefur verið til umræðu í kjölfar þess að núverandi sýslumaður hverfur tímabundið til starfa hjá sýslumannaráði og Sýslumaðurinn á Suðurlandi mun gegna stöðu sýslumanns í Vestmanneyjum í heila 11 mánuði. Ljóst er að framtíð sýslumannsembættisins í Vestmannaeyjum er nokkuð óljós miðað við þær tilkynningar sem fylgdu í kjölfarið. Sýslumannaráð á að endurskoða stjórnsýslu sýslumanna í héraði og hyggst dómsmálaráðherra koma með lagafrumvarp sem heimilar ráðherra að setja einn sýslumann yfir fleiri en eitt embætti. Úr þessu má lesa að embættið sem slíkt verður kannski ekki lagt niður en það verður enginn sýslumaður á staðnum þar sem það kemur einnig fram að skipun núverandi sýslumanns muni ljúka um næstkomandi áramót.

Ný lög samþykkt 2014
Skipan framkvæmdarvalds og lögreglu í héraði var breytt með samþykkt nýrrar löggjafar á Alþingi 2014 og tóku þau lög gildi 1. janúar 2015. Í aðdraganda þeirrar lagasetningar var töluvert rætt um hvort það ætti að vera sér embætti sýslumanns og sér embætti lögreglustjóra í Vestamannaeyjum. Við þingmenn kjördæmisins héldum þeim sjónarmiðum hátt á lofti að vegna sérstöðu Vestmannaeyja, sem rúmlega fjögur þúsund manna samfélags á eyju með öflugu atvinnulífi, þyrftu þessi tvö embætti að vera til staðar sem sjálfstæð embætti í Vestmannaeyjum. Frumvarpið var svo lagt fram með þeirri tillögu að það yrði sér embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum en lögreglan myndi vera undir lögreglustjóranum á Suðurlandi. Við sem sátum þá í allsherjar- og menntamálanefnd töldum mikilvægt að taka mið af sérstöðu Vestmannaeyja með því að leggja til breytingatillögu um að það yrði sér lögreglustjóraembætti í Vestamanneyjum en í nefndaráliti nefndarinnar segir:

„Ljóst má vera að Vestmannaeyjar hafa sérstöðu umfram aðra landshluta þegar kemur að samgöngum. Bent var á að þegar best lætur liggja samgöngur niðri hálfan sólarhringinn, þ.e. hvorki er siglt né flogið. Nefndin ræddi þetta nokkuð og er það álit hennar að vegna hinna sérstöku aðstæðna Vestmannaeyja í samgöngumálum sé rétt að Vestmannaeyjar verði sjálfstætt lögregluumdæmi og leggur fram breytingartillögu þar um.“
Þetta á enn við um bæði embættin.

Það átti að efla embættin
 Í 1. gr. laga nr. 50 frá 2014 segir að sýslumenn fari með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi. Með þetta að leiðarljósi var farið út í að aðskilja sýslumenn og lögreglustjóra, sameina embættin til að gera þeim kleift að sinna þessu hlutverki sínu. Í frumvarpinu að lögunum kom fram að:

„Í þessu felst sú meginstefna að skrifstofur sýslumanna verði stjórnsýslumiðstöðvar ríkisins í héraði. Það er hagkvæmt fyrir hina opinberu stjórnsýslu að sameinast í einn þjónustukjarna. Það er ekki síður til þæginda fyrir þá sem þjónustunnar eiga að njóta að geta leitað á einn stað til að fá þjónustu fleiri ólíkra stofnana. Auk lögbundinna verkefna hafa sýslumenn um árabil sinnt verkefnum fyrir fleiri ráðuneyti. Má þar nefna innheimtu opinberra gjalda og umboðsstörf fyrir Tryggingastofnun ríkisins og Sjúkratryggingar Íslands. Við endurskipulagningu á opinberri þjónustu á landsbyggðinni er eðlilegt að skoðað verði hvort og hvernig sýslumenn geti í auknum mæli þjónað ríkisstofnunum sem hafa starfsstöðvar úti á landi. Þetta getur verið með ýmsu móti allt frá því að sýslumönnum yrðu falin störf í umboði viðkomandi stofnunar til þess að þeir veiti stofnuninni ákveðna stoðþjónustu án þess að þeir hefðu með störf hennar að gera að öðru leyti. Sem dæmi mætti nefna:

  1. Þjónustan gæti verið fólgin í því að stofnanir sem hefðu útibú á stjórnsýslusvæðinu nytu ýmis konar stoðþjónustu frá sýslumannsembætti, svo sem bókhaldsþjónustu og símsvörunarþjónustu.
  2. Þjónustan gæti verið fólgin í því að viðkomandi stofnun hefði starfsaðstöðu í húsnæði sýslumannsembættis, líkt og háttar til með útibú umboðsmanns skuldara hjá sýslumanninum í Reykjanesbæ.
  3. Þjónustan gæti einnig verið fólgin í því að sýslumanni eða tilteknum starfsmanni hans væru falin ákveðin verkefni í þágu tiltekinnar stofnunar.
    Öll slík þjónusta yrði að vera samkvæmt samningi milli stofnunarinnar og viðkomandi sýslumanns, sniðin að þörfum viðkomandi stofnunar.“

Við meðferð frumvarpsins fyrir nefndinni komu fram þau sjónarmið að brýnt væri að halda vel utan um þau verkefni sem ætlað væri að flytja frá ráðuneyti til undirstofnana, þar sem nauðsynlegt væri að tryggja eftirfylgni í því sambandi.

Undir þessi sjónarmið tókum við heilshugar í þingnefndinni og mikilvægi þess að gera aðgerðaráætlun þar að lútandi. Nefndin lagði því til að við frumvarpið bættist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem kvað á um það að við samþykkt frumvarpsins skyldi innanríkisráðuneytið í samstarfi við forsætisráðuneytið vinna aðgerðaráætlun fyrir Stjórnarráðið, þar sem afmörkuð verði þau stjórnsýsluverkefni ráðuneyta og undirstofnana þeirra sem talið er ákjósanlegt að flutt verði til embætta sýslumanna. Aðgerðaráætlunin átti að liggja fyrir eigi síðar en 1. janúar 2015, eða við gildistöku umdæmamarka sýslumannsembætta og lögregluembætta. Í stuttu máli má segja að þetta hafi engan veginn gengið eftir og var innanríkisráðuneytið eina ráðuneytið sem reyndi að sýna viðleitni á sínum tíma.

Öflugri embætti
Ekki þarf að fjölga opinberum störfum en þeim má fjölga sem sinnt er á landsbyggðinni ásamt því þarf að verja opinbera þjónustu á landsbyggðinni. Því vona ég að þetta sé hluti af þeim verkefnum sem Lára Huld er að fara að sinna fyrir sýslumannaráð. Að hún nýti sína þekkingu sem sýslumaður hjá litlu embætti á landsbyggðinni til að leggja til verkefni sem geta eflt slík embætti og styrkt um leið þá þjónustu og stjórnsýslu sem ríkið veitir út um allt land. Ég mun nú sem áður berjast fyrir eflingu embættanna á landsbyggðinni og mikilvægi embættanna í Vestamanneyjum. Ég mun ekki láta fyrri árangur svo glatt af hendi.

Vilhjálmur Árnason,
alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.