Yfirskattanefnd hefur úrskurðað Ísfélaginu í hag í deilum félagsins við Skattinn vegna opinberra gjalda 2017 til 2020.
Niðurstaðan er í megindráttum sú að Ísfélagið fái þá skatta endurgreidda sem ágreiningur var um, samkvæmt Kauphallartilkynningu Ísfélagsins. Vegna þessa ágreinings hafði félagið eignfært 446,5 milljónir króna og því hefur niðurstaðan óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan.
Í útgefendalýsingu Ísfélags hf. frá því í nóvember 2023 kom fram í kafla 1.1.4, um skattalega áhættu, að ágreiningur væri við Skattinn um opinber gjöld vegna tiltekinna gjaldára og að félagið hefði kært álagningu Skattsins til yfirskattanefndar (YSKN) sem hefur nú úrskurðað í málinu.
Niðurstaða YSKN er í megindráttum að Ísfélag hf. fái þá skatta endurgreidda sem ágreiningur var um. Vegna þessa ágreinings hafði félagið eignfært 446,5 milljónir króna og því hefur niðurstaðan óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.