Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja fór Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri yfir svör frá Flugfélaginu Erni vegna fyrirspurnar til flugfélagsins um tegundir flugvéla sem notaðar hafa verið i flugferðir til Eyja frá áramótum, sætaframboð og nýtingu sæta. Jafnframt hvort og þá hvenær áætlað sé að hefja flug til Eyja á föstudögum.
Í svörum frá flugfélaginu kom fram að frá áramótum hefur verið notast við 9 og 32 sæta vélar þar sem 19 sæta vélin, sem samningur við Vegagerðina tekur til, er í viðhaldi fram í miðjan febrúar. Reynt hafi verið að nota 32 sæta vélina á álagstímum.
Frá því flug hófst um miðjan desember hefur nýting sæta verið um 50% en fer upp í 61% ef eingöngu er horft til 19 sæta vélarinnar. Bæjarstjóri óskaði eftir því við ráðherra þann 24. janúar sl. að flugferðum yrði bætt við, ekki hefur enn orðið að því.
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum óskuðu eftir nýrri dagsetningu fyrir samgöngufund og verður fundurinn haldinn miðvikudaginn 13. mars nk.
Fram kemur í afgreiðslu ráðsins að bæjarráð óski eftir því að ráðherra tryggi að flug verði út apríl og ferðum fjölgað eins og um hefur verið rætt á fundum með ráðuneytinu.
Þá fól ráðið bæjarstjóra að óska eftir upplýsingum um hvar útboð á ríkisstyrktu flugi sé statt fyrir næsta vetur. Ekki má draga málið enn einu sinni þar til málið brennur inni á tíma.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst