Ráðherrar til fundar í Eyjum
Untitled (1000 x 667 px)
Guðlaugur Þór og Þórdís Kolbrún funda með Eyjamönnum. Ljósmynd/samsett

Þriðjudagar eru flugferðadagar okkar Eyjamanna og munu tveir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands nýta sér það á morgun, þriðjudaginn 20. febrúar og eiga fundi við okkur í Ásgarði.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra hittir okkur á súpufundi í hádeginu, kl. 12:00 og ræðir við okkur sína málaflokka sem og flokksstarfið. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármálaráðherra mætir svo kl. 20:00 og ræðir við okkur flokksstarfið, málaflokka sína og að sjálfsögðu mál líðandi stundar er snúa að kröfugerð ráðuneytis hennar fyrir hönd ríkisins, samkvæmt kröfum óbyggðanefndar um meintar þjóðlendur í Vestmannaeyjum.

Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá stjórn Sjálfstæðisfélagnna.

Nýjustu fréttir

Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.