Jóhann Hjartarson sigurvegari á Beddamótinu

Fjölmennt og sterkt atskákmót til minningar um Bergvin Oddsson – Bedda á Glófaxa  fór fram  í húsnæði Þekkingarsetursins á laugardaginn. Keppendur voru alls 42 talsins , þar af fimm stórmeistrar og nokkrir alþjóðlegir skákmeistarar.  Atskákmótið var haldið af Taflfélagi Vestmannaeyja í samstarfi við fjölskyldu Bergvins, en Beddi tefldi mikið á yngri árum og var í hópi öflugustu  bakhjarla TV.

Keppendur á mótinu allt frá 10 ára upp í 77 ára, þar af þrjár konur. Umhugsunartími  15 mín. á skákina og 5 sek. á hvern leik. Alls voru tefldar átta umferðir, en hver umferð tók um 45 mínútur.  Arnar Sigurmundsson form. TV og Lúðvík Bergvinsson  settu mótið. María – Dúlla – Friðriksdóttir ekkja Bedda  lék fyrsta leikinn í skák Lúðvíks við Jóhann Hjartarson stórmeistara.

Beddamótið er meðal sterkustu atskákmóta sem fram hafa farið hérlendis. Úrslit réðust í síðustu umferðinni , Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson urðu jafnir í 1.-2. sæti með 6,5 vinninga í átta skákum.  Jóhann úrskurðaður sigurvegari .  Í  3-5 sæti urðu  Helgi Ólafsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Þröstur Þórhallsson allir með 6 vinninga. Helgi var úrskurðaður í 3. sæti.  Þeir sem skipuðu fimm efstu sætin eru allt stórmeistarar. Þeir Jóhann, Hannes Hlífar og Helgi skipuðu einnig efstu þrjú sætin á Skákþingi Íslands sem fram fór í Eyjum 1994 og ótrúlegt að sama niðurstaða skyldi nú verða í jafnsterku móti 25 árum síðar!  Af 42 keppendum voru átta búsettir í Eyjum, en einnig nokkrir Eyjamenn búsettir uppi á landi sem hafa teflt með TV í Íslandsmótum skákfélaga.   Skákstjóri var Kristján Örn Elíasson, en hann var yfirskákdómari á Reykjavíkurmótinu sem fór fram í apríl sl. Arnar Sigurmundsson var honum til aðstoðar við framkvæmd mótsins.Fjölmargir aðilar komu að undirbúningi mótsins. Fjölskylda Bergvins  gaf öll verðlaun sem  voru mjög vegleg , auk þess styrktu fyrirtæki innannbæjar og utan mótshaldið og framhaldið.  Arnar Sigurmundsson formaður TV segir að mótið hafi verið öllum til sóma- og ánægjulegt að minnast  þessa mæta manns og félaga  Bedda á Glófaxa með jafn afgerandi hætti.

 

Nýjustu fréttir

Bongóblíða í Eyjum
Siglt á flóði til Landeyjahafnar
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.